Fréttir, opinberar birtingar, starfsmenn og laus störf er að finna á vef Umhverfis- og orkustofnunar.

Um okkur

Orkustofnun starfar undir yfirstjórn Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins samkvæmt lögum og reglugerð um Orkustofnun.

Um okkur

Menu

Raforkueftirlitið

Náttúruauðlindir

Orkuskipti

Upplýsingar

Stjórnsýsla

Ákvarðanir og úrlausnir

Ákvarðanir Raforkueftirlits

Raforkueftirlitið annast stjórnsýslu í raforkumálum og undirbýr og tekur ákvarðanir í málum er lúta eftirliti stofnunarinnar í samræmi við raforkulög nr. 65/2003 og reglugerðum settum á grundvelli þeirra. Hér undir falla kvartanir hagsmunaaðila á raforkumarkaði og ákvarðanir um tekjumörk og uppgjör þeirra.

Markmiðið með birtingu þessara upplýsinga er að skapa gagnsæi í starfsemi Raforkueftirlitsins, tryggja jafnt aðgengi hagsmunaaðila að þessum upplýsingum, gera hagsmunaðilum kleift að nýta sér fram komnar ákvarðanir í starfsemi sinni og/eða hagsmunagæslu. Að lokum er birting ákvarðana einn þátturinn í að skapa umgjörð um heilbrigðan raforkumarkað þar sem leikreglur raforkumarkaðarins mótast meðal annars af þessum ákvörðunum.    

Úrlausnir Raforkueftirlits

Orkustofnun hefur ákveðið að úrlausnir Raforkueftirlitsins verði birtar á heimasíðu stofnunarinnar. Í fyrstu verða birtar ákvarðanir sem að varða tekjumörk flutnings- og dreififyrirtækja en markmiðið er að síðar verði birtar fleiri úrlausnir sem Raforkueftirlitið vinnur að á hverjum tíma. Þar má til dæmis nefna ákvarðanir um kvartanir hagsmunaaðila á raforkumarkaði í samræmi við raforkulög nr. 65/2003og tengdar reglugerðir.