Hafa samband
Hér má finna leiðir til að hafa samband við starfsmenn Umhverfis- og orkustofnunar, koma með ábendingar, óska eftir gögnum eða fá svar við fyrirspurnum. Við viljum hvetja til að velja þá leið sem mælt er með til að flýta fyrir afgreiðslu mála.
Vinsamlegast athugið að þann 1. janúar 2025 tók Umhverfis- og orkustofnun við hlutverki Orkustofnunar.
Opnunartími skrifstofu
Síminn hjá Umhverfis- og orkustofnun er 569 6000 og skiptiborðið opið mánudaga – föstudaga kl. 08:30 – 15:00
Ekki gleyma að skoða fyrst heimasíðu okkar
Svör við spurningum er varða eftirfarandi málefni er mjög líklega að finna þar:
- Upplýsingar um þjónustu til einstaklinga eins og styrki, eingreiðslur og niðurgreiðslur
- Allar upplýsingar fyrir raforkunotandann eins og um álestur og val á sölufyrirtæki
- Allar upplýsingar um rafbílastyrki má finna hér
- Umsóknir um leyfi skulu fara fram í gegnum umsóknarsíðu.
Ef svarið er ekki að finna á vefnum okkar má senda inn fyrirspurnir, sjá upplýsingar hér að neðan.
Hvernig á að senda inn formleg erindi og almennar fyrirspurnir?
Til að tryggja skjóta og rétta afgreiðslu erinda og fyrirspurna þarf að beina þeim réttar leiðir. Nýta má þjónustugátt stofnunarinnar til að senda inn rafrænar umsóknir og stærri fyrirspurnir. Þannig geta notendur fylgst með eigin málum innan stofnunarinnar eftir að hafa auðkennt sig með rafrænum skilríkjum.
- Fyrirspurnir um niðurgreiðslur og eingreiðslur (s.s. styrki fyrir varmadælur) má senda á netfangið nidurgreidslur@uos.is
- Gagnaskil vegna eldsneytis, jarðhita og varmaorku skal skila inn í gegnum þjónustugátt Orkustofnunar. Öðrum gagnaskilum má skila á netfangið gogn@uos.is
- Bókhald. Beiðnir um hreyfingalista og innsenda reikninga skal senda á netfangið bokhald@uos.is
Þjónustugátt okkar
Erindi sem berast Umhverfis- og orkustofnun í gegnum þjónustugátt eru flokkuð í fyrirspurnir, umsóknir og gagnaskil. Þegar búið er að skrá sig inn á þjónustugáttina með rafrænum skilríkjum er smellt á hnappinn fyrirspurnir til að senda inn fyrirspurn.
- Almennar fyrirspurnir. Þetta eru fyrirspurnir eða athugasemdir við starfsemina eða beiðni um upplýsingar sem ekki falla undir flokkana hér að neðan eða ekki er hægt að finna upplýsingar um á heimasíðu stofnunarinnar.
- Fyrirspurnir til Raforkueftirlits skal senda á raforkueftirlitið.
- Fyrirspurnir varðandi nytjavatn, jarðhita, jarðefni og vindmyllur skal senda á náttúruauðlindir.