Fréttir, opinberar birtingar, starfsmenn og laus störf er að finna á vef Umhverfis- og orkustofnunar.

Um okkur

Orkustofnun starfar undir yfirstjórn Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins samkvæmt lögum og reglugerð um Orkustofnun.

Um okkur

Menu

Raforkueftirlitið

Náttúruauðlindir

Orkuskipti

Upplýsingar

Stjórnsýsla

Leyfisveitingar á grundvelli ákvæða raforkulaga

Eftirfarandi starfsemi er leyfisskyld samkvæmt ákvæðum raforkulaga nr. 65/2003

  • Raforkuvinnsla, sbr. 4. gr. raforkulaga. Raforkueftirlitið annast ekki veitingu virkjunarleyfis á grundvelli raforkulaga sbr. ákvæði 2. mgr. 24. gr. raforkulaga.
  • Leyfi Raforkueftirlitsins þarf fyrir nýju flutningsvirki sbr. 2. mgr. 9. gr. raforkulaga, ef það er ekki tilgreint í framkvæmdaáætlun kerfisáætlunar sem samþykkt hefur verið af Orkustofnun í samræmi við 9. gr. a raforkulaga. Um málsmeðferð leyfisveitingar fer í samræmi við 34. gr. raforkulaga. Raforkueftirlitið getur bundið leyfið skilyrðum um öryggi, skilvirkni, áreiðanleika afhendingar, gæða raforku og stefnu stjórnvalda um uppbyggingu flutningskerfis raforku.
  • Reisa og reka dreifikerfi og til að hætta slíkum rekstri, sbr. 13. gr. raforkulaga.
  • Leyfi Raforkueftirlitsins þarf til þess að dreifiveitur geti viðhaft sérstaka gjaldskrá á dreifbýlissvæðum þar sem kostnaður vegna dreifingar er sannanlega hærri en í þéttbýli, sbr. 2. mgr. 17. gr. a. raforkulaga.
  • Raforkuviðskipti , sbr. 18. gr. raforkulaga
  • Leyfi ráðherra þarf til að reka raforkumarkað sbr. 18. gr. a. raforkulaga.
  • Leyfi Raforkueftirlitsins þarf til þess að nýta og selja orku sem leysist úr læðingi í formi varma frá eigin framleiðsluferlum og vélbúnaði sem nota orku (glatvarmi).
  • Leyfi Raforkueftirlitsins þarf til þess að fjarlægja eða grisja tré eða trjágróður á helgunarsvæði flutnings- eða dreifikerfis raforku þegar upp kemur ágreiningur milli flutningsfyrirtækisins eða dreifiveitu og landeiganda eða umráðamanns lands um slíkar aðgerðir, sbr. 4. mgr. 21. gr. a. raforkulaga.

 

Leiðbeiningar vegna umsóknar um leyfi til að reisa og reka dreifikerfi

Samkvæmt 13. gr. raforkulaga þarf leyfi Orkustofnunar til að reisa og reka dreifikerfi á tilteknu dreifiveitusvæði og til að hætta slíkum rekstri. Í leyfinu felst einkaréttur og skylda til dreifingar á viðkomandi svæði. Dreifiveita skal vera sjálfstæður skatt- og lögaðili og skal ávallt vera í meirihlutaeigu ríkis, sveitarfélaga og/eða fyrirtækja sem eru alfarið í eigu þessara aðila.

Sérleyfi samkvæmt má ekki framselja né setja til tryggingar fjárskuldbindingum nema með leyfi Orkustofnunar.

Í reglugerð um framkvæmd raforkulaga er að finna leiðbeiningar varðandi umsóknir um leyfi til að reisa og reka dreifikerfi á tilteknu dreifiveitusvæði.

Umsókn um leyfi

Umsókn um leyfi til að reisa og reka dreifikerfi skal vera skrifleg og skulu fylgja henni eftirfarandi upplýsingar og gögn:

  1. Nafn, kennitala og heimili umsækjanda.

  2. Stofnefnahagsreikningur eða efnahags- og rekstrarreikningur næstliðins árs.

  3. Afmörkun starfssvæðis og lýsing á dreifikerfi.

  4. Áætlun um rekstur og uppbyggingu kerfisins til 3 ára.

  5. Samningur um tengingu við flutningskerfið.

Skilyrði sérleyfis

Dreifiveita skal uppfylla eftirfarandi skilyrði til að öðlast sérleyfi til dreifingar og halda þeim rétti:

  1. Dreifiveita skal vera sjálfstæður lög- og skattaðili.

  2. Dreifiveita skal geta sýnt fram á rekstrarhæfi á hverjum tíma og skal í því skyni vinna rekstraráætlun til 36 mánaða sem skal endurskoðuð árlega. Stjórn og framkvæmdastjórn dreifiveitu ber að tilkynna til Orkustofnunar ef upp kemur sú staða að fyrirsjáanlegt er að rekstrarhæfi dreifiveitu er ekki tryggt.

  3. Dreifikerfi skal tengjast flutningskerfinu. Orkustofnun getur þó veitt undanþágu frá þessu skilyrði við sérstakar aðstæður, svo sem ef um lítið einangrað svæði er að ræða.

  4. Kröfur sem gerðar eru til öryggis raforkuvirkja, gæða raforku og afhendingaröryggis á hverjum tíma skulu uppfylltar.

  5. Dreifiveita skal uppfylla skilyrði laga og stjórnvaldsfyrirmæla um umhverfisvernd sem í gildi eru á hverjum tíma.

  6. Dreifiveita skal fjarlægja mannvirki og búnað á eigin kostnað þegar notkun hans er hætt og fyrirsjáanlegt er að hann verður ekki notaður frekar. Orkustofnun getur þó að fengnu samþykki viðkomandi sveitarfélags heimilað að ekki þurfi að fjarlægja mannvirki og búnað.

  7. Önnur skilyrði sem leiða má af öðrum lögum en raforkulögum eða stjórnvaldsfyrirmælum.

Málsmeðferð og gjaldtaka

Leyfi skal veitt á grundvelli umsóknar sem skal metin á hlutlægan og gagnsæjan hátt. Áður en Orkustofnun veitir leyfi skal stofnunin leita umsagnar viðkomandi sveitarfélaga og skulu umsagnir berast innan tveggja mánaða frá því beiðni þar að lútandi var send.

Orkustofnun skal kynna umsókn um leyfi í Lögbirtingablaði þar sem þeim aðilum sem málið varðar er gefið færi á að kynna sér umsóknina og koma á framfæri sjónarmiðum sínum innan fjögurra vikna frá birtingu auglýsingar. Umsækjandi skal kosta birtingu slíkrar auglýsingar.

Orkustofnun skal á grundvelli framlagðra gagna, umsagna og athugasemda sem fram hafa komið meta hvort umsækjandi uppfylli skilyrði fyrir veitingu leyfis. Telji Orkustofnun svo ekki vera skal stofnunin synja um veitingu leyfis eða binda leyfið skilyrðum sem hún telur nauðsynleg í þessu sambandi. Synjun um veitingu leyfis skal rökstudd.

Ákvörðun Orkustofnun skal tekin innan tveggja mánaða frá því öll gögn hafa borist frá umsækjanda og allar umsagnir og athugasemdir liggja fyrir. Fyrir leyfið skal greiða 50.000 kr. auk 10 kr. fyrir hvern íbúa og skal gjaldið greitt við móttöku leyfis.

Ef leyfishafi fer ekki að skilyrðum raforkulaga, reglugerðar um framkvæmd raforkulagar eða skilyrðum leyfis, samningum sem tengjast því eða öðrum heimildum skal Orkustofnun veita honum skriflega aðvörun og hæfilegan frest til úrbóta. Ef leyfishafi sinnir ekki aðvörun Orkustofnun innan tilgreindra tímamarka getur stofnunin afturkallað leyfið eða breytt því. Ef um alvarleg brot eða vanrækslu er að ræða eða ljóst er að leyfishafi getur ekki staðið við skyldur sínar samkvæmt leyfinu getur Orkustofnun þó afturkallað það án aðvörunar.

Samkvæmt 1. mgr. 30. gr. raforkulaga sæta stjórnvaldsákvarðanir sem teknar eru af Orkustofnun á grundvelli raforkulaga og varða verkefni er lúta ekki að veitingu, endurskoðun og afturköllum leyfa skv. 1. mgr. 4. gr., 2. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 11. gr. sæta kæru til úrskurðarnefndar raforkumála. Kæra til nefndarinnar skal vera skrifleg og skal hún borin fram innan 30 daga frá því að aðila máls var tilkynnt um ákvörðun.

Flutningsvirki

Leyfisveitingar vegna flutningsvirkja

Orkustofnun hefur tekið saman eftirfarandi leiðbeiningar vegna umsóknar um leyfi fyrir flutningsvirki. Tilgangur með leiðbeiningunum er að setja skýrari ramma fyrir umsækjanda en nú er til staðar í raforkulögum eða reglugerðum. Leiðbeiningarnar taka meðal annars til loftlína, jarð- og sæstrengja, tengivirkja og spennistöðva.

 

Söluleyfi

Leiðbeiningar vegna umsóknar um leyfi til að stunda raforkuviðskipti

Leyfi Orkustofnunar þarf til þess að stunda raforkuviðskipti. Slíkt leyfi felur hvorki í sér sérleyfi né önnur sérréttindi til handa leyfishafa.

Leyfi til að stunda raforkuviðskipti má hvorki framselja né setja til tryggingar fjárskuldbindingum nema með leyfi Orkustofnunar.

Leyfi til að stunda raforkuviðskipti verður aðeins veitt sjálfstæðum lög- og skattaðila. Umsækjandi skal sýna fram á fjárhagslegan styrkleika til að efna skuldbindingar vegna starfseminnar. Sölufyrirtæki skal hafa eigið fé sem nemur að lágmarki kr. 15.000.000.

Sölufyrirtæki skal gera áætlun til 36 mánaða í senn um umfang orkusölu og hvernig það muni útvega raforku til þess að standa við orkusölusamninga. Slík áætlun skal fylgja umsókn um leyfi. Orkustofnun getur krafist þess að sölufyrirtæki setji fram tryggingu er taki mið af áætluðu umfangi orkusölu.

Leyfi skal veitt á grundvelli umsóknar sem skal metin á hlutlægan og gagnsæjan hátt. Orkustofnun skal á grundvelli framlagðra gagna meta hvort umsækjandi uppfylli skilyrði fyrir veitingu leyfis. Telji Orkustofnun svo ekki vera skal stofnunin synja um veitingu leyfis eða binda leyfið skilyrðum sem hún telur nauðsynleg í þessu sambandi. Synjun um veitingu leyfis skal rökstudd.

Fyrir leyfi til að stunda raforkuviðskipti skal greiða 50.000 kr. og skal gjaldið greitt við móttöku leyfis.

Ef leyfishafi fer ekki að skilyrðum raforkulaga, reglugerðar um framkvæmd raforkulaga, skilyrðum leyfisins eða öðrum heimildum skal Orkustofnun veita honum skriflega aðvörun og hæfilegan frest til úrbóta. Ef leyfishafi sinnir ekki aðvörun Orkustofnunar innan tilgreindra tímamarka getur stofnunin afturkallað leyfið eða breytt því. Ef um alvarleg brot eða vanrækslu er að ræða eða ljóst er að leyfishafi getur ekki staðið við skyldur sínar samkvæmt leyfinu getur Orkustofnun þó afturkallað það án aðvörunar.

Samkvæmt 1. mgr. 30. gr. raforkulaga sæta stjórnvaldsákvarðanir sem teknar eru af Orkustofnun á grundvelli raforkulaga og varða verkefni er lúta ekki að veitingu, endurskoðun og afturköllum leyfa skv. 1. mgr. 4. gr., 2. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 11. gr. sæta kæru til úrskurðarnefndar raforkumála. Kæra til nefndarinnar skal vera skrifleg og skal hún borin fram innan 30 daga frá því að aðila máls var tilkynnt um ákvörðun.