Um okkur

Orkustofnun starfar undir yfirstjórn Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins samkvæmt lögum og reglugerð um Orkustofnun.

Um okkur

Menu

Raforkueftirlitið

Náttúruauðlindir

Orkuskipti

Upplýsingar

Stjórnsýsla

Útgáfa

Orkustofnun gefur reglulega út skýrslur, bæklinga og annað efni sem tengist orkumálum.

Útgáfusaga Orkustofnunar nær aftur til ársins 1931. Á vef Orkustofnunar má nálgast útgefið efni aftur til ársins 2008 en eldra efni má finna í Gegni og í Rafhlöðunni.

Efni í útgáfum Orkustofnunar er verndað af höfundarétti. Heimilt er án endurgjalds að vista efni vefsins á rafrænan hátt, prenta það, fjölfalda og dreifa. Heimild til slíkrar eintakagerðar er þó bundin því skilyrði að þess sé getið hvaðan efnið sé sótt (með vísun til Orkustofnunar) og höfundar getið (ef það kemur fram á vefnum). Einnig er það skilyrði að notkunin sé ekki í hagnaðarskyni. Heimild þarf til breytingar eða þýðingar á efni sem tekið er af vef Orkustofnunar eða úr útgáfum stofnunarinnar.

Allar breytingar á efni eða gögnum Orkustofnunar skulu gerðar með samþykki stofnunarinnar, og á það jafnt við um endurnot sem og endurvinnslu þeirra gagna sem birt eru af hálfu stofnunarinnar. Sömu sjónarmið eiga við ef gerðar eru viðbætur við framangreint efni.