Virkjunarleyfi fyrir Hvammsvirkjun í Þjórsá
7 desember 2022Orkustofnun hefur veitt Landsvirkjun virkjunarleyfi fyrir allt að 95 MW Hvammsvirkjun í Þjórsá, Rangárþingi ytra og Skeiða- og Gnúpverjahreppi.
Nálgast má virkjunarleyfið og fylgibréf leyfis á vef Orkustofnunar, sjá OS-2022-L022-01
Ákvarðanir Orkustofnunar er lúta að veitingu virkjunarleyfa sæta kæru til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, sbr. 2. mgr. 37. gr. raforkulaga. Skal kæra borin fram innan eins mánaðar frá því kæranda varð kunnugt eða mátti vera kunnugt um ákvörðunina. Um aðild, málsmeðferð og annað er varðar kæruna fer samkvæmt lögum um úrskurðarnefndina, nr. 130/2011.