Skipun WACC – nefndar
11 desember 2025
Samkvæmt 2. tölul. 3. mgr. 12. gr. og 17. gr. raforkulaga, nr. 65/2003, skal arðsemi flutningsfyrirtækisins og dreifiveitna af flutnings- og dreifistarfsemi vera sem næst vegnum fjármagnskostnaði, að teknu tilliti til skatta og að frátöldum verðlagsbreytingum. Í ákvæðinu er með nánari hætti fjallað um með hvaða hætti slík arðsemi skuli fundin út. Þá segir einnig að arðsemin skuli ákvörðuð að fengnu mati sérfróðra aðila.
Í reglugerð nr. 192/2016, frá 1. mars 2016, er með nánari hætti fjallað um það hvernig reikna skuli út veginn fjármagnskostnað sem vísað er til í raforkulögum. Jafnframt segir í reglugerðinni að Orkustofnun, nú Umhverfis – og orkustofnun, geti að fengnu áliti sérfróðra aðila og að höfðu samráði við hagsmunaaðila, sbr. 3. mgr. 12. gr. og 3. mgr. 17. gr. raforkulaga, lagt fram tillögu til ráðherra um endurskoðun fastra matsbreytna samkvæmt reglugerðinni ef stofnunin telur tilefni til þess, s.s. vegna sérstakra aðstæðna á markaði.
Sérfróðir aðilar skv. 1. mgr. eru tilnefndir af Umhverfis- og orkustofnun og skulu þeir hafa sérfræðiþekkingu á sviði fjármála og fjármagnskostnaðar. Við mat hinna sérfróðu aðila ber þeim að hafa samráð við framleiðendur raforku, neytendur, stórnotendur, dreifiveitur og Landsnet.
Forstjóri Umhverfis – og orkustofnunar og sviðsstjóri Raforkueftirlitsins hafa nú skipað sérfróða aðila í nefnd um endurskoðun fastra matsbreytna og er nefndin skipuð eftirtöldum aðilum.
- Dr. Hersir Sigurgeirsson, prófessor við Háskóla Íslands
- Perla Ösp Ásgeirsdóttir, framkvæmdastjóri Eflingar
- Margit Johanne Robertet, forstöðumaður framtakssjóða Kviku eignastýringar
- Arna G. Tryggvadóttir, sviðsstjóri endurskoðunar hjá PwC.
Samráðsfundur og gagnaskil
Samráðsfundur verður haldinn 15. janúar nk. þar sem hagsmunaaðilum er gefinn kostur á að koma á framfæri sínum sjónarmiðum. Aðilar geta sent nefndinni erindi fyrir fundinn á raforkueftirlit@uos.is auk þess sem hagsmunaðilum er gefinn kostur á að senda gögn og greiningar til 31. janúar 2026, en bent er á að nefndin hefur einungis það lögbundna hlutverk að fjalla um fastar matsbreytur í samræmi við 7. gr. reglugerðar nr. 192/2016. Ekki er gert ráð fyrir erindum um önnur atriði.
Að loknum samráðsfundi mun nefndin hefja vinnu við að meta forsendur fyrir endurskoðun fasta matsbreytna á grundvelli þeirra sjónarmiða sem lögð hafa verið fram af hálfu hagsmunaaðila.
Fleiri fréttir


