Um okkur

Orkustofnun starfar undir yfirstjórn Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins samkvæmt lögum og reglugerð um Orkustofnun.

Um okkur

Menu

Raforkueftirlitið

Náttúruauðlindir

Orkuskipti

Upplýsingar

Stjórnsýsla

Fréttir
Styrkir til fjölþjóðlegra verkefna á sviði endurnýjanlegrar orku og orkukerfa

Styrkir til fjölþjóðlegra verkefna á sviði endurnýjanlegrar orku og orkukerfa

3 júní 2021
Styrkir til fjölþjóðlegra verkefna á sviði endurnýjanlegrar orku og orkukerfa

GEOTHERMICA og JPP Smart Energy Systems auglýsa eftir umsóknum um styrki til verkefna í sameiginlegu kalli fyrir árið 2021 "Accelerating the Heating and Cooling Transition".

Markmið kallsins er að styðja við verkefni sem knýja áfram að tækniþróun, samþættingu orkukerfa og nýsköpun, á markaðsforsendum og hafa jafnframt burði til að ná verulegum árangri fyrir árið 2030. Til ráðstöfunar í kallinu eru allt að 32,5 milljónir evra.

Langar þig að taka þátt og sækja um?

Opinn kynningarfundur verður haldinn á netinu þann 9 júní 2021 frá kl. 13:00 - 15:30, þar sem farið verður yfir áherslur kallsins og umsóknarskilyrði. Þau sem hafa áhuga á að taka þátt í þessum kynningarfundi eru vinsamlegast beðin um að skrá sig hér: Joint Call 2021, “Accelerating Heating and Cooling Transition form

Einnig er boðið upp á vefsíðu (“Matchmaking Platform”) fyrir þá sem vilja byrja að byggja upp verkefnishópa og móta hugmyndir. Í lok kynningarfundarins 9. júní verður haldið fyrirtækjastefnumót “matchmaking event” meðal skráðra þátttakenda. Við hvetjum áhugasama því eindregið til að skrá sig sem fyrst, en leiðbeiningar um skráningu er að finna á síðunni. Vefsíðan verður öllum opin til 4 október 2021.

Frekari upplýsingar má finna hér: http://www.geothermica.eu/joint-call-2021/

Einnig er hægt að hafa beint samband við GEOTHERMICA í tölvupósti: info@geothermica.eu

GEOTHERMICA verkefninu er stýrt af Orkustofnun.

Styrkt af eftirtöldum aðilum: