Um okkur

Orkustofnun starfar undir yfirstjórn Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins samkvæmt lögum og reglugerð um Orkustofnun.

Um okkur

Menu

Raforkueftirlitið

Náttúruauðlindir

Orkuskipti

Upplýsingar

Stjórnsýsla

Fréttir
Rannsóknarleyfi til sýnatöku við Landeyjarhöfn

Rannsóknarleyfi til sýnatöku við Landeyjarhöfn

30 júní 2023
Mynd: Kevin Clyde Berbano

Orkustofnun hefur veitt Hornstein ehf rannsóknarleyfi til sýnatöku á lausum jarðefnum á hafsbotni, til 30. júní 2025, á afmörkuðu svæði utan netalaga við Landeyjarhöfn.

Nálgast má efnistökuleyfið og fylgibréf leyfis á vef Orkustofnunar, sjá OS-2023-L013-01

Ákvarðanir Orkustofnunar er lúta að veitingu, endurskoðun og afturköllun leyfa samkvæmt lögum um eignarétt íslenska ríkisins að auðlindum hafsbotnsins, nr. 73/1990, sæta kæru til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, samkvæmt 6. gr. laganna. Um aðild, kærufrest, málsmeðferð og annað er varðar kæruna fer samkvæmt lögum um úrskurðarnefn umhverfis og auðlindamála, nr. 130/2011. Samkvæmt 2. mgr. 4. gr. laga, nr. 130/2011, skal kæra til úrskurðarnefndar borin fram innan eins mánaðar frá því að kæranda varð kunnugt eða mátti vera kunnugt um ákvörðunina.