Um okkur

Orkustofnun starfar undir yfirstjórn Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins samkvæmt lögum og reglugerð um Orkustofnun.

Um okkur

Menu

Raforkueftirlitið

Náttúruauðlindir

Orkuskipti

Upplýsingar

Stjórnsýsla

Fréttir
Raforkueftirlit Orkustofnunar samþykkir kerfisáætlun Landsnets 2021-2030

Raforkueftirlit Orkustofnunar samþykkir kerfisáætlun Landsnets 2021-2030

28 apríl 2022
Raforkueftirlit Orkustofnunar samþykkir kerfisáætlun Landsnets 2021-2030

Raforkueftirlit Orkustofnunar tók þann 26. apríl 2022 ákvörðun um að samþykkja kerfisáætlun Landsnets fyrir tímabilið 2021-2030. 

Með breytingu á raforkulögum á árinu 2015 fékk Orkustofnun nýtt hlutverk sem felst í eftirliti með uppbyggingu flutningskerfisins í gegnum kerfisáætlun Landsnets. Raforkueftirlit Orkustofnunar (ROE) fer með þetta hlutverk, í samræmi við 2. mgr. 24. gr. raforkulaga.

Landsnet skal árlega leggja fram kerfisáætlun til samþykktar hjá Orkustofnun sem felur í sér tvo megin þætti:

• Langtímaáætlun sem sýnir þá hluta í meginflutningskerfinu sem fyrirhugað er að byggja upp eða uppfæra á næstu tíu árum.

 Framkvæmdaáætlun sýnir áætlaðar fjárfestingar í flutningskerfinu sem Landnet hyggst ráðast í á næstu þremur árum.

Samkvæmt raforkulögum hefur Orkustofnun það hlutverk að fara yfir og meta kerfisáætlun Landsnets með hliðsjón af markmiðum raforkulaga um öryggi, skilvirkni, áreiðanleika afhendingar, hagkvæmni, gæði raforku og stefnu stjórnvalda um lagningu raflína.

ROE fékk kerfisáætlun 2021 – 2030 frá Landsneti til formlegrar meðferðar þann 31. ágúst 2021. Í matsferlinu gerði ROE athugasemdir við framlagða kerfisáætlun Landsnets og óskaði eftir breytingum á áætluninni.

Landsnet skilaði ROE endanlegri uppfærðri kerfisáætlun með breytingum þann 22. apríl 2022.

ROE hefur nú yfirfarið þær breytingar sem Landsnet hefur gert á kerfisáætlun fyrirtækisins og er það mat stofnunarinnar að að áætlunin uppfylli skilyrði raforkulaga nr. 65/2003 og reglugerðar nr. 870/2016 um kerfisáætlun fyrir uppbyggingu flutningskerfis raforku.

Það er því niðurstaða ROE að samþykkja kerfisáætlun Landsnets 2021-2030. Ákvörðunin er kæranleg til úrskurðarnefndar raforkumála.

Hægt að nálgast kerfisáætlunina ásamt fylgigögnum hér að neðan

Nánari upplýsingar veita:

    Hanna Björg Konráðsdóttir, deildarstjóri raforkueftirlits Orkustofnunar

    Rán Jónsdóttir, verkefnisstjóri

      Kerfisáætlun Landsnets 2021-2030  -  Áætlun um framkvæmdaverk 2022-2030

      Kerfisáætlun Landsnets 2021-2030  -  Langtímaáætlun um þróun meginflutningskerfis raforku

      Kerfisáætlun Landsnets 2021-2030  -  Umhverfisskýrsla

      Kerfisáætlun Landsnets 2021-2030.  Athugasemdir og umsagnir

      Kerfisáætlun Landsnets 2021-2030.  Viðbrögð við athugasemdum og umsögnum

      Kerfisáætlun Landsnets 2021-2030.  Svarbréf Landsnets til Orkustofnunar, dags. 10. desember 2021

      Kerfisáætlun Landsnets 2021-2030.  Svarbréf Landsnets til Orkustofnunar, dags. 4. febrúar 2022

      Kerfisáætlun Landsnets 2021-2030.  Bréf Orkustofnunar til Landsnets, dags. 25. mars 2022  

      Kerfisáætlun Landsnets 2021-2030.  Ákvörðunarbréf Orkustofnunar til Landsnets, dags. 28. apríl 2022