Um okkur

Orkustofnun starfar undir yfirstjórn Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins samkvæmt lögum og reglugerð um Orkustofnun.

Um okkur

Menu

Raforkueftirlitið

Náttúruauðlindir

Orkuskipti

Upplýsingar

Stjórnsýsla

Fréttir
Orkustofnun veitir leyfi til málmleitar í Húnabyggð

Orkustofnun veitir leyfi til málmleitar í Húnabyggð

4 desember 2023
Orkustofnun veitir leyfi til málmleitar í Húnabyggð

Orkustofnun hefur veitt Víðarr ehf. leyfi til leitar og rannsókna á málmum á afmörkuðu svæði milli Vatnsdals og Svínadals í Húnabyggð.

Nálgast má rannsóknarleyfið og fylgibréf leyfis á vef Orkustofnunar, sjá https://orkustofnun.is/licenses/OS-2023-L016-01

Ákvarðanir Orkustofnunar er lúta að veitingu rannsóknarleyfa sæta kæru til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, sbr. 2. mgr. 33. gr. laga um rannsóknir og nýtingu á auðlindum í jörðu, nr. 57/1998. Skal kæra borin fram innan eins mánaðar frá því kæranda varð kunnugt eða mátti vera kunnugt um ákvörðunina. Um aðild, málsmeðferð og annað er varðar kæruna fer samkvæmt lögum um úrskurðarnefndina, nr. 130/2011.