Um okkur

Orkustofnun starfar undir yfirstjórn Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins samkvæmt lögum og reglugerð um Orkustofnun.

Um okkur

Menu

Raforkueftirlitið

Náttúruauðlindir

Orkuskipti

Upplýsingar

Stjórnsýsla

Fréttir
Orkusjóður – úthlutun styrkja 2021 - skriðþungi orkuskipta eykst

Orkusjóður – úthlutun styrkja 2021 - skriðþungi orkuskipta eykst

17 september 2021

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ráðherra ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunar og Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, samþykktu á dögunum tillögur stjórnar Orkusjóðs um verulega aukningu fjármagns til orkuskipta 2021. Samþykkt úthlutun úr sjóðnum er um 470 mkr., fjármögnuð sameiginlega af ANR og UAR ráðuneytum ásamt Orkusjóði.

Óskað var eftir umsóknum til hleðslustöðva við ferðamannastaði, líkt og áður hefur verið gert, en nýbreytni þetta árið að var að beina sjónum sérstaklega að framleiðslufyrirtækjum sem nota olíu og mætti minnka stórlega og jafnvel fjarlægja alveg með hagkvæmum hætti. Þannig er áætlað að yfir 5000 tonn koltvísýringsígilda (um 2 milljónir olíulítra) hverfi með þessum aðgerðum.

Önnur nýjung var stuðningur við rafknúnar vinnuvélar (t.d. gröfur, skotbómulyftara o.fl.) þar sem fjölbreytni er orðin mikil frá framleiðendum en innleiðing hérlendis skortir.

Einnig var stuðningur við innviðauppbyggingu svo að þungaflutningar verði knúnir raforku á stærri akstursleiðum og til útflutnings á fiskeldisafurðum. Síðast en ekki síst var horft til verkefna á sviði líf- og rafeldsneytis og orkugeymslu, en þar er fyrirséð að vetnisframleiðsla hefjist í stórum stíl og raforka geymd í ofurhleðslum.

Orkusjóður er í umsýslu Orkustofnunar og gegnir mikilvægu hlutverki í hraða vegferð orkuskipta í landinu. 

Nánari upplýsingar um einstaka styrki Orkusjóðs árið 2021 má sjá hér .