Nýtingarleyfi á jarðhita á Krossholti í Vesturbyggð
27 janúar 2023Orkustofnun hefur veitt Vesturbyggð nýtingarleyfi á jarðhita á Krossholti í Vesturbyggð
Nálgast má nýtingarleyfið og fylgibréf leyfis á vef Orkustofnunar, sjá OS-2023-L003-01
Ákvarðanir Orkustofnunar er lúta að veitingu nýtingarleyfa sæta kæru til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, sbr. 2. mgr. 33. gr. laga um rannsóknir og nýtingu á auðlindum í jörðu, nr. 57/1998. Skal kæra borin fram innan eins mánaðar frá því kæranda varð kunnugt eða mátti vera kunnugt um ákvörðunina. Um aðild, málsmeðferð og annað er varðar kæruna fer samkvæmt lögum um úrskurðarnefndina, nr. 130/2011.