Um okkur

Orkustofnun starfar undir yfirstjórn Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins samkvæmt lögum og reglugerð um Orkustofnun.

Um okkur

Menu

Raforkueftirlitið

Náttúruauðlindir

Orkuskipti

Upplýsingar

Stjórnsýsla

Fréttir
Nýtingarleyfi á grunnvatni í Sveitarfélaginu Vogar

Nýtingarleyfi á grunnvatni í Sveitarfélaginu Vogar

8 maí 2023
Nýtingarleyfi á grunnvatni í Sveitarfélaginu Vogar

Orkustofnun hefur veitt Benchmark Genetics Iceland hf. nýtingarleyfi til töku grunnvatns vegna fiskeldis og fyrir neysluvatn, til 4. maí 2043, á tilgreindu svæði við Vogavík, Sveitarfélaginu Vogar.

Nálgast má nýtingarleyfið og fylgibréf leyfis á vef Orkustofnunar,OS-2023-L009-01 ogOS-2023-L009-01-Fylgibréf

Ákvarðanir Orkustofnunar er lúta að veitingu, endurskoðun og afturköllun leyfa samkvæmt lögum um eignarétt íslenska ríkisins að auðlindum hafsbotnsins, nr. 73/1990, sæta kæru til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, samkvæmt 6. gr. laganna. Um aðild, kærufrest, málsmeðferð og annað er varðar kæruna fer samkvæmt lögum um úrskurðarnefn umhverfis og auðlindamála, nr. 130/2011. Samkvæmt 2. mgr. 4. gr. laga, nr. 130/2011, skal kæra til úrskurðarnefndar borin fram innan eins mánaðar frá því að kæranda varð kunnugt eða mátti vera kunnugt um ákvörðunina.