Um okkur

Orkustofnun starfar undir yfirstjórn Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins samkvæmt lögum og reglugerð um Orkustofnun.

Um okkur

Menu

Raforkueftirlitið

Náttúruauðlindir

Orkuskipti

Upplýsingar

Stjórnsýsla

Fréttir
Kynningarfundur um Uppbyggingarsjóð EES – tækifæri fyrir íslensk fyrirtæki

Kynningarfundur um Uppbyggingarsjóð EES – tækifæri fyrir íslensk fyrirtæki

7 mars 2022

Rannís, Íslandsstofa og Orkustofnun standa að kynningarfundi í Sjávarklasanum og rafrænt þriðjudaginn 8. mars nk. frá 13:00-14:00 um tækifæri fyrir íslensk fyrirtæki til þátttöku í verkefnum á vegum Uppbyggingarsjóðs EES.

Sérstök áhersla verður lögð á útboð á Grikklandi með áherslu á grænar lausnir, bláa hagkerfið og upplýsingatækni. Sérstakur rafrænn kynningarfundur með grískum, norskum og íslenskum aðilum vegna útboðsins fer fram á B2Match þann 10. mars. Einnig verður kynnt fyrirtækjastefnumót um bláa hagkerfið í Evrópu sem fram fer 10.-11. maí í Aþenu og verða ferðastyrkir í boði.

Sjá nánari upplýsingar á vefsíðu Rannís.