Um okkur

Orkustofnun starfar undir yfirstjórn Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins samkvæmt lögum og reglugerð um Orkustofnun.

Um okkur

Menu

Raforkueftirlitið

Náttúruauðlindir

Orkuskipti

Upplýsingar

Stjórnsýsla

Fréttir
Kerfisáætlun 2023-2032

Kerfisáætlun 2023-2032

19 september 2023
Kerfisáætlun 2023-2032

Raforkueftirliti Orkustofnunar (ROE) barst þann 8. september 2023 kerfisáætlun Landsnets fyrir tímabilið 2023-2032 til formlegrar meðferðar. Samkvæmt 2. mgr. 9. gr. b. raforkulaga nr. 65/2003 hefur Orkustofnun það hlutverk að fara yfir og samþykkja kerfisáætlun Landsnets með hliðsjón af markmiðum um öryggi, skilvirkni, áreiðanleika afhendingar, hagkvæmni, gæði raforku og stefnu stjórnvalda um lagningu strengja.

ROE skal við yfirferð kerfisáætlunar hafa samráð við alla núverandi og væntanlega viðskiptavini flutningsfyrirtækisins sbr. 2. mgr. 8. gr. raforkulaga í opnu og gagnsæju samráðsferli.

Af þessu tilefni vill ROE bjóða viðskiptavinum Landsnets og væntanlegum viðskiptavinum fyrirtækisins að koma á framfæri umsögnum vegna kerfisáætlunar 2023-2032.

Þeir aðilar sem telja sig vera væntanlega viðskiptavini flutningsfyrirtækisins skulu rökstyðja það sérstaklega. ROE metur hvort aðili hafi sýnt fram á með fullnægjandi hætti að hann geti talist væntanlegur viðskiptavinur flutningsfyrirtækisins.

 

ROE hefur sent auglýsingu í Lögbirtingablaðið og er frestur til þess að koma á framfæri athugasemdum vegna kerfisáætlunar Landsnets 2023-2032 er fjórar vikur frá birtingu auglýsingar í Lögbirtingablaði sbr. 3. mgr. 4. gr. reglugerðar nr. 870/2016 um kerfisáætlun fyrir uppbyggingu flutningskerfis raforku. Eftir þann tíma mun ROE birta þær umsagnir sem eftirlitinu berast vegna málsins á heimasíðu Orkustofnunar; www.os.is. Þá verður Landsneti boðið að koma á framfæri athugasemdum vegna framkominna umsagna.

 

Hægt að nálgast kerfisáætlunina hér:

Kerfisáætlun 2023-2032 - Áætlun um framkvæmdaverk 2024-2026

Kerfisáætlun 2023-2032 – Langtímaáætlun

Kerfisáætlun 2023-2032 – Umhverfisskýrsla

Innsendar umsagnir við Kerfisáætlun 2023-2032

Innsendar umsagnir við verk- og matslýsingu

Kerfisáætlun 2023-2032 - Viðbrögð við umsögnum