Um okkur

Orkustofnun starfar undir yfirstjórn Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins samkvæmt lögum og reglugerð um Orkustofnun.

Um okkur

Menu

Raforkueftirlitið

Náttúruauðlindir

Orkuskipti

Upplýsingar

Stjórnsýsla

Fréttir
Kerfisáætlun 2021-2030

Kerfisáætlun 2021-2030

1 september 2021
Kerfisáætlun 2021-2030

Raforkueftirliti Orkustofnunar (ROE) barst þann 31. ágúst 2021 kerfisáætlun Landsnets fyrir tímabilið 2021-2030 til formlegrar meðferðar. Samkvæmt 2. mgr. 9. gr. b. raforkulaga nr. 65/2003 hefur Orkustofnun það hlutverk að fara yfir og samþykkja kerfisáætlun Landsnets með hliðsjón af markmiðum um öryggi, skilvirkni, áreiðanleika afhendingar, hagkvæmni, gæði raforku og stefnu stjórnvalda um lagningu strengja. 

ROE skal við yfirferð kerfisáætlunar hafa samráð við alla núverandi og væntanlega viðskiptavini flutningsfyrirtækisins sbr. 2. mgr. 8. gr. raforkulaga í opnu og gagnsæju samráðsferli.

Af þessu tilefni vill ROE bjóða viðskiptavinum Landsnets og væntanlegum viðskiptavinum fyrirtækisins að koma á framfæri umsögnum vegna kerfisáætlunar 2021-2030.

Þeir aðilar sem telja sig vera væntanlega viðskiptavini flutningsfyrirtækisins skulu rökstyðja það sérstaklega. ROE metur hvort aðili hafi sýnt fram á með fullnægjandi hætti að hann geti talist væntanlegur viðskiptavinur flutningsfyrirtækisins.

ROE hefur sent auglýsingu í Lögbirtingablaðið og er frestur til þess að koma á framfæri athugasemdum vegna kerfisáætlunar Landsnets 2021-2030 er fjórar vikur frá birtingu auglýsingar í Lögbirtingablaði sbr. 3. mgr. 4. gr. reglugerðar nr. 870/2016 um kerfisáætlun fyrir uppbyggingu flutningskerfis raforku. Eftir þann tíma mun ROE birta þær umsagnir sem eftirlitinu berast vegna málsins á heimasíðu Orkustofnunar; www.os.is. Þá verður Landsneti boðið að koma á framfæri athugasemdum vegna framkominna umsagna.

Hægt að nálgast kerfisáætlunina hér:

          Kerfisáætlun Landsnets 2021-2030.  Áætlun um framkvæmdaverk 2022-2024

          Kerfisáætlun Landsnets 2021-2030.  Langtímaáætlun um þróun flutningskerfis raforku

          Kerfisáætlun Landsnets 2021-2030.  Umhverfisskýrsla

          Kerfisáætlun Landsnets 2021-2030.  Athugasemdir og umsagnir

          Kerfisáætlun Landsnets 2021-2030 . Viðbrögð við athugasemdum og umsögnum