Um okkur

Orkustofnun starfar undir yfirstjórn Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins samkvæmt lögum og reglugerð um Orkustofnun.

Um okkur

Menu

Raforkueftirlitið

Náttúruauðlindir

Orkuskipti

Upplýsingar

Stjórnsýsla

Fréttir
Efnistökuleyfi fyrir Hafnir Ísafjarðarbæjar

Efnistökuleyfi fyrir Hafnir Ísafjarðarbæjar

25 janúar 2023

Orkustofnun hefur veitt Höfnum Ísafjarðarbæjar efnistökuleyfi fyrir töku allt að 200.000 rúmmetrum efnis af hafsbotni utan netlaga í innsiglingu og hafnarsvæði Ísafjarðarhafnar, Skutulsfirði

Nálgast má efnistökuleyfið og fylgibréf leyfis á vef Orkustofnunar, sjá  OS-2023-L001-01

Ákvarðanir Orkustofnunar er lúta að veitingu, endurskoðun og afturköllun leyfa samkvæmt lögum um eignarétt íslenska ríkisins að auðlindum hafsbotnsins, nr. 73/1990, sæta kæru til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, samkvæmt 6. gr. laganna. Um aðild, kærufrest, málsmeðferð og annað er varðar kæruna fer samkvæmt lögum um úrskurðarnefn umhverfis og auðlindamála, nr. 130/2011. Samkvæmt 2. mgr. 4. gr. laga, nr. 130/2011, skal kæra til úrskurðarnefndar borin fram innan eins mánaðar frá því að kæranda varð kunnugt eða mátti vera kunnugt um ákvörðunina.