Um okkur

Orkustofnun starfar undir yfirstjórn Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins samkvæmt lögum og reglugerð um Orkustofnun.

Um okkur

Menu

Raforkueftirlitið

Náttúruauðlindir

Orkuskipti

Upplýsingar

Stjórnsýsla

Fréttir
Ársfundur Orkustofnunar - Orka, vatn og jarðefni

Ársfundur Orkustofnunar - Orka, vatn og jarðefni

2 júní 2023
Ársfundur Orkustofnunar - Orka, vatn og jarðefni

Ársfundur Orkustofnunar verður haldinn í Norðurljósum í Hörpu föstudaginn 9. júní á milli kl. 9 til 11:30. Húsið opnar kl: 8:30 og boðið er upp á morgunhressingu.

Samfélag okkar stendur á tímamótum í orkumálum með innleiðingu orkuskipta og mikilvægt er að það sé gert af alúð og í þágu samfélagsins. Orkustofnun leggur ríka áherslu á að svo sé gert og hvetur alla sem láta sig málin varða að koma til fundarins.

Á ársfundinum verður farið yfir starfsemina á árinu 2022 og varpað ljósi á helstu áfanga er varða orkumálin, sem og önnur verkefni sem stofnunin sinnir á sviði nýtingu vatns og jarðefna á þjóðlendum og á hafsbotni. Enn fremur verða í forgrunni verkefni og aðgerðir sem hafa verið innleidd til að efla skilvirkni og gagnsæi starfseminnar. Á meðal þess sem fjallað verður um eru leyndardómar leyfisveitinga og töfrar varmadælna en gleðigjafinn Sólmundur Hólm mun sjá um að draga fram spaugilegri hliðar orkumála.

Dagskrá

 

Ávarp umhverfis-, orku-, og loftslagsráðherra Guðlaugur Þór Þórðarson

Ávarp orkumálastjóra Halla Hrund Logadóttir frá Orkustofnun

 

Skilvirkni stjórnsýslu á tímum orkuskipta og nýsköpunar

Leyndardómar leyfisveitinga Marta Rós Karlsdóttir, Ph.D. sviðsstjóri sjálfbærrar auðlindanýtingar

Örerindi

· Skilvirkari stjórnsýsla - eingreiðslur vegna umhverfisvænnar orkuöflunar Eyrún Gígja Káradóttir, verkefnastjóri Orkuseturs

· Áður en lengra er haldið, mikilvægi framtíðarsýnar í stjórnsýslu Sigurjón Njarðarson, lögfræðingur auðlindanýtingar og Tinna Jónsdóttir, verkefnastjóri auðlindaeftirlits

Raforkuöryggi – markaður, tækifæri og áskoranir

 

Raforkuöryggi í þágu almennings - Hanna Björg Konráðsdóttir, deildarstjóri raforkueftirlits Orkustofnunar

Örerindi

  • Orkuhermirinn: Hvernig metum við raforkuöryggi á Íslandi Dagur Helgason, sérfræðingur í greiningu orkumarkaða – Greining á orkulíkaninu
  • Gögn og greiningar - vannýtta auðlindin Björn Arnar Hauksson, deildarstjóri greininga og gagnavinnslu
  • Orkusjóður, tenging á milli fortíðar og framtíðar Eyrún Gígja Káradóttir, verkefnastjóri Orkuseturs

Húshitun í nútíð og framtíð

Aukin notkun - betri nýting Heimir Tryggvason, sérfræðingur hitaveita og bein nýting jarðhita

Varmadælur- töfrarnir í orkunýtni Sigurður Ingi Friðleifsson, sviðsstjóri loftslagsmála, orkuskipta og nýsköpunar

Örerindi

  • Alþjóðleg vitundarvakning á nýtingu jarðhita Hjalti Páll Ingólfsson, framkvæmdastjóri GEORG - rannsóknaklasa í jarðhita

Lokaorð Hr. Ólafur Ragnar Grímsson, fv. Forseti Íslands

Fundarstjórn Þorsteinn Másson, framkvæmdastjóri Bláma

Myndband af ársfundinum