Vinna við nýja heimasíðu Umhverfis- og orkustofnunar er í gangi. Heimasíða Orkustofnunar er virk á meðan vinnunni stendur.

Um okkur

Orkustofnun starfar undir yfirstjórn Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins samkvæmt lögum og reglugerð um Orkustofnun.

Um okkur

Menu

Raforkueftirlitið

Náttúruauðlindir

Orkuskipti

Upplýsingar

Stjórnsýsla

Leyfisveitingar og umsóknir

Orkustofnun veitir leyfi til leitar, rannsókna og nýtingar grunnvatns, hvort sem um er að ræða eignarlönd eða þjóðlendur, í samræmi við lög um rannsóknir og nýtingu á auðlindum í jörðu. Stofnunin hefur jafnframt með höndum stjórnsýslu og eftirlit varðandi vatn á yfirborði jarðar samkvæmt vatnalögum og veitir rannsóknar- og virkjunarleyfi til undirbúnings vatnsaflsvirkjana samkvæmt ákvæðum raforkulaga.

Við leyfisveitingar Orkustofnunar til nýtingar vatns, og við aðrar leyfisveitingar, ber stofnuninni að tryggja að leyfið sé í samræmi við þá stefnumörkun um vatnsvernd sem fram kemur í vatnaáætlun sem unnin er í samræmi við lög um stjórn vatnamála, nr. 36/2011. Í tilvikum sem fyrirhugaðar framkvæmdir falla undir ákvæði laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana, nr. 111/2021, berjafnframt að liggja fyrir niðurstaða Skipulagsstofnunar um að framkvæmd sé ekkimatsskyld, ellegar álit stofnunarinnar á matsskýrslu verkefnisins, áður en leyfisumsókn er send Orkustofnun.

Leyfi – umsóknir (og nánari upplýsingar)

  • Leyfi til leitar og rannsókna á grunnvatni
  • Leyfi til nýtingar grunnvatns
  • Rannsóknarleyfi til undirbúnings vatnsaflsvirkjana
  • Virkjunarleyfi fyrir vatnsaflsvirkjanir
  • Leyfi Orkustofnunar til framkvæmda í og við vötn