Um okkur

Orkustofnun starfar undir yfirstjórn Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins samkvæmt lögum og reglugerð um Orkustofnun.

Um okkur

Menu

Raforkueftirlitið

Náttúruauðlindir

Orkuskipti

Upplýsingar

Stjórnsýsla

Hefur þú valið sölufyrirtæki rafmagns?

Dreifiveitur eru ekki söluaðilar

Dreifing raforku er sérleyfisþáttur þannig að einn aðili sér um dreifingu á hverjum stað. Notendur geta ekki valið sér dreifiaðila. Hlutverk dreifiveitna er að annast dreifingu raforku og kerfisstjórnun á dreifiveitusvæði sínu. Fimm dreifiveitur eru starfandi á Íslandi. Þær eru: HS Veitur, Norðurorka, Orkubú Vestfjarða, Veitur og RARIK. Dreifiveitum er óheimilt að hafa aðkomu að vali þínu á raforkusala með því að gefa upp kjör raforkusölufyrirtækja.

Hvernig veit ég að ég þarf að velja? Og hvenær þarf ég að vera búin að velja?

Ef þú hefur ekki verið í viðskiptum við sölufyrirtæki raforku síðastliðna 90 daga, ert t.d. að kaupa þína fyrstu íbúð eða það tekur einhvern tíma að skipta um húsnæði, svona millibilsástand eins og við könnumst mörg við, eða ert hreinlega af einhverjum öðrum ástæðum að tengjast rafveitu í fyrsta skipti, þá er mikilvægt að hafa samband við það raforkusölufyrirtæki sem þú kýst að vera í viðskiptum við og gera raforkusölusamning. Ef þessu er ekki sinnt innan 30 daga frá- notendaskiptum er dreifiveitum heimilt að stöðva raforkuafhendingu til viðkomandi notanda, að undangenginni skriflegri viðvörun um stöðvun raforkuafhendingar. Raforkusölufyrirtækið kemur raforkuviðskiptum á fyrir viðkomandi viðskiptavin.
Hægt er að sjá samanburð á raforkuverði á heimasíðu Orkuseturs

Hvað ef þú vilt bara skipta?

Ef þú vilt skipta og eiga viðskipti við annað raforkusölufyrirtæki er það gert með því að hafa samband við það raforkusölufyrirtæki sem þú hyggst eiga í viðskiptum við og raforkusalinn sér um söluaðilaskiptin.

Öll ljós slökkt og enginn heima?

Við viljum ekki lenda í því að lokað verði fyrir rafmagnið hjá okkur. Það getur þó gerst ef samningur um afhendingu raforku er ekki til staðar, vegna þess að þá hafa dreifiveitur heimildir til að stöðva afhendingu raforku. Það er því mikilvægt að við veljum okkur raforkusala, einfaldlega vegna þess að dreifiveitum er óheimilt að afhenda rafmagn til þeirra sem ekki hafa gildan samning við sölufyrirtæki raforku.