Orkusetur Orkustofnunar
Hlutverk Orkuseturs er að stuðla að aukinni vitund almennings og fyrirtækja um skilvirka orkunotkun og möguleika til orkusparnaðar. Verkefni Orkuseturs eru einnig á sviði nýrra orkugjafa og gerð fræðsluefnis. Orkusetrið er óháð og sjálfstæð eining sem vinnur að markmiðum sínum sem einskonar tengiliður milli stjórnvalda, almennings, fyrirtækja og stofnana.
Heimasíða Orkuseturs![Hero](/_next/image?url=https%3A%2F%2Fimages.prismic.io%2Fneasite%2F5884af7f-952c-4afb-85d4-0147a825dfdd_Rafb%25C3%25ADlareiknir.jpg%3Fauto%3Dcompress%2Cformat&w=1536&q=75)
Af hverju var Orkusetur stofnað?
Orkusetrið er stofnað af Orkustofnun í samstarfi við iðnaðar- og viðskiptaráðuneytið. Verkefnið er styrkt af Evrópusambandinu auk þess sem Samorka kemur að fjármögnun setursins.
Innan orkusviðs Evrópusambandsins (ESB) er að finna sjóð undir heitinu Intelligent Energy – Europe (IEE). Meðal þeirra verkefnaflokka sem IEE er ætlað að styrkja er stofnun svokallaðra orkusetra eða orkuskrifstofa (Energy Agenies) í aðildarlöndunum. Þeim er ætlað að starfa svæðisbundið og hafa þegar verið stofnaðar um 350 slíkar skrifstofur að tilstuðlan IEE víðs vegar um Evrópu.
Samgöngu- og ökutækjastefna
Meðal hlutverka Orkuseturs er að finna og kynna leiðir til að draga úr notkun jarðefnaeldsneytis í samgöngum. Orkusetur setur sér því eigin stefnu varðandi kaup, leigu og notkun bifreiða.
Þessari stefnu mun Orkusetur fylgja með eftirfarandi að leiðarljósi:
Draga úr notkun jarðefnaeldsneytis.
Auka hlut eldsneytis frá endurnýjanlegum orkugjöfum.
Að ofangreindum markmiðum vill Orkusetur vinna m.a. með eftirfarandi leiðum:
Bifreiðar keyptar á vegum Orkuseturs skulu knúnar vistvænum orkugjöfum þar sem orkunýtni verður höfð til viðmiðunar í vali á bifreið.
Ef ofangreind ökutæki henta illa eða fást ekki á viðunandi kjörum skal leitast við að velja bifreiðar með lægstu eyðslugildi sem völ er á hverju sinni.
Þegar leigðar eru bifreiðar, bílaleigu- eða leigubifreiðar, skal ávallt leitað þjónustu fyrirtækja sem bjóða upp á bifreiðar knúnar vistvænum orkugjöfum og/eða visthæfum bifreiðum með útblástursgildi undir 120 CO2g/km. Ávallt skal óskað eftir slíkum bifreiðum nema sérstakar aðstæður kalli á stærri bifreiðar.
Ef nauðsynlegt reynist að nýta stærri bifreiðar vegna sérstakra aðstæðna skal leitast við að velja orkunýtnasta ökutækið í hverjum stærðarflokki.
Starfsfólki Orkuseturs verður boðið upp á námskeið í vistakstri sem dregur úr eyðslu og umhverfisáhrifum og eykur jafnframt öryggi við akstur.
Starfsfólk Orkuseturs skal nýta almenningssamgöngur á vinnutíma þegar það á við og leitast við að ganga styttri vegalengdir nema sérstakar aðstæður kalli á annað.
Leitast verður við að draga úr ónauðsynlegum ferðum með hjálp upplýsingatækni og aukinni samnýtingu ferða.