Um okkur

Orkustofnun starfar undir yfirstjórn Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins samkvæmt lögum og reglugerð um Orkustofnun.

Um okkur

Menu

Raforkueftirlitið

Náttúruauðlindir

Orkuskipti

Upplýsingar

Stjórnsýsla

Niðurgreiðslur húshitunar

Nánar um niðurgreiðslu á raforku til húshitunar.

Þar sem húshitun með raforku er talsvert dýrari en húshitun frá jarðvarmaveitu. Niðurgreiðir ríkið dreifi- og flutningskostnað raforku til hitunar lögheimila til að jafna búsetuskilyrði.

Niðurgreiðslur húshitunarkostnaðar af hálfu ríkisins eru umtalsverðar þar sem ríkið niðurgreiðir að fullu dreifi- og flutningskostnað raforku til húshitunar hjá notendum í samræmi við notkun að hámarki 40.000 KWh/ári.

Samkvæmt lögum um niðurgreiðslu húshitunarkostnaðar nr. 78/2002 og reglugerð um framkvæmd laga um niðurgreiðslur húshitunarkostnaðar nr. 698/2013 þurfa allir notendur sem vilja njóta niðurgreiðslu að sækja um það sérstaklega til Orkustofnunar, sem hefur eftirlit með framkvæmd laganna.

Eigandi/leigjandi íbúðarhúsnæðis sem ekki hefur kost á fullri hitun með jarðvarma getur sótt um niðurgreiðslu húshitunarkostnaðar til Orkustofnunar, sem metur á grundvelli umsóknar hvort skilyrði þessara laga fyrir niðurgreiðslum, sbr. 4. grein, séu uppfyllt.

Sækja má um niðurgreiðslu með eftirtöldum leiðum:

  • Fylla út umsókn í þjónustugátt og senda til Orkustofnunar.

  • Fylla út eyðublað á pappírsformi og senda í pósti til Akureyrarseturs Orkustofnunar, Rangárvöllum, 603 Akureyri. Orkustofnun sendir eyðublaðið til þeirra sem þess óska.

Orkustofnun veitir nánari upplýsingar um niðurgreiðslulögin og aðstoðar íbúðareigendur við umsóknina eins og kostur er. 

Hringja má í síma 569 6000 eða senda tölvupóst á netfangið nidurgreidslur@os.is.

Leiðbeiningar fyrir þjónustugátt