Fréttir, opinberar birtingar, starfsmenn og laus störf er að finna á vef Umhverfis- og orkustofnunar.

Um okkur

Orkustofnun starfar undir yfirstjórn Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins samkvæmt lögum og reglugerð um Orkustofnun.

Um okkur

Menu

Raforkueftirlitið

Náttúruauðlindir

Orkuskipti

Upplýsingar

Stjórnsýsla

Hitaveitur Hvað gerum við

Hlutverk OS hitaveitur

Hlutverk Orkustofnunar gagnvart starfsemi hitaveitna á Íslandi snýr að miklu leytiað gagnasöfnun, vinnslu og miðlun upplýsinga. Orkustofnun safnar upplýsingum um varmanotkun hitaveitna, hvort heldur sem er jarðhitaveitna eða fjarvarmaveitna og birtir talnaefni, sjá hér.

Orkustofnun sér einnig um niðurgreiðslur húshitunarkostnaðar vegna húsnæðis sem ekki er tengt jarðhitaveitu, sjá hér.

Stærstu hitaveitur á Íslandi hafa einkaleyfi, útgefið af ráðherra, til starfsemi á sínu veitusvæði, eða hluta þess, og starfa samkvæmt reglugerð. Þessi heimild er miðað við þau skilyrði sem orkulög nr. 58/1967,með síðari breytingum, ákveða. Mestur hluti varmans sem þær veita er fenginn frá jarðhitasvæðum en þó nokkrar rafkyntar fjarvarmaveitur eru starfandi á Vestfjörðum og Austurlandi. Þessar hitaveitur sjá um 95% þjóðarinnar fyrir heitu vatni. Áætlað er að um 200 minni jarðvarmahitaveitur séu starfandi víðs vegar í dreifðari byggðum landsins og sjá bæði heimilum og atvinnustarfsemi fyrir varma.

Hitaveitur með einkaleyfi skv. gildandi reglugerð í nóvember 2021.