Um okkur

Orkustofnun starfar undir yfirstjórn Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins samkvæmt lögum og reglugerð um Orkustofnun.

Um okkur

Menu

Raforkueftirlitið

Náttúruauðlindir

Orkuskipti

Upplýsingar

Stjórnsýsla

Búlgaría

Opnað var fyrir umsóknir um styrki til jarðhitaverkefna í orkuáætlun Uppbyggingarsjóðs EES í Búlgaríu, 2021, undir yfirskriftinni „Notkun jarðhita til hitunar eða kælingar í opinberum byggingum (e. BGENERGY-1.002 - „Use of geothermal for heating & cooling in state or municipal buildings“). Alls eru 3,4 milljónir evra til úthlutunar og er styrkhlutfall allt að 100%.

Markmið orkuáætlunarinnar í Búlgaríu er aukin framleiðsla endurnýjanlegrar orku og minnkun í losun á koltvísýringi. Þá er tvíhliða samstarf einnig mikilvægt markmið. Umsóknir með samstarfsaðila frá Íslandi eða Noregi gefa fleiri stig þegar þær eru metnar. Áhugasamir aðilar á Íslandi eru því hvattir til að kynna sér þetta tækifæri vel.