Uppruni raforku 2021

Sölufyrirtæki sem ekki afskrá upprunaábyrgðir eða sambærilegar afurðir skulu gefa út staðlaða yfirlýsingu.   Orkustofnun hefur reiknað út uppruna raforku fyrir árið 2021 sem er birt í staðlaðri yfirlýsingu.

Niðurstöðurnar sjást hér:

Uppruni raforku á Íslandi 2021


Úrgangsefni miðað við uppruna raforku 2021


Upplýsingar sem fram koma í útreikningum Orkustofnunar eiga að birtast notendum raforku árlega á eða með reikningum.

      Stöðluð yfirlýsing

Athygli er vakin á því að eins og fram kemur í stöðluðu yfirlýsingunni er nánast öll raforkuframleiðsla á Íslandi frá endurnýjanlegum orkugjöfum. Einungis 0,01% er frá jarðaefnaeldsneyti. Meirihluti raforku í Evrópu á hins vegar uppruna sinn í jarðefnaeldsneyti og kjarnorku og skýrir það að í útreikningi Orkustofnunar á raforkuleifinni fyrir Ísland er líka jarðefnaeldsneyti og kjarnorka.

Einnig er bent á það að til að raforkusali getir vottað að hann selji 100% endurnýjanlega raforku þá þarf hann að afskrá a.m.k. jafn mikið magn af upprunaábyrgðum og hans raforkusala.

Sjá nánar hér að neðan.