Sértæk yfirlýsing 2019
Sölufyrirtæki raforku sem afskráir upprunaábyrgðir í eigin þágu ber að birta sértæka yfirlýsingu. Birta á sértæka yfirlýsingu fyrir 1. júlí ár hvert.
Sértæka yfirlýsingin sýnir hlutfall af afskráðri raforku sem er framleidd með endurnýjanlegum hætti, eða það magn af raforku sem upprunaábyrgðir hafa verið gefnar út fyrir, í hlutfalli við heildarsölu fyrirtækisins. Þegar sölufyrirtæki afskráir upprunabyrgðir í eigin þágu eykst vægi á uppruna raforku sem framleidd er með endurnýjanlegum hætti. Nánar er kveðið á um sértæka yfirlýsingu í 9. og 10. gr. framangreindrar reglugerðar.
Fyrir árið 2019 eru átta fyrirtæki með sértæka yfirlýsingu. Þessi fyrirtæki hafa því afskráð upprunaábyrgðir fyrir allri sölu á rafmagni fyrir árið 2019. Uppruni raforku hjá þessum fyrirtækjum telst því 100% endurnýjanleg raforka. Í dag eru átta sölufyrirtæki sem selja til almennra notenda og geta því allir almennir notendur keypt raforku með endurnýjanlegri raforku.
Sölufyrirtæki með sértæka yfirlýsingu eru í stafrófsröð:
- Fallorka
- HS Orka
- Íslensk orkumiðlun
- Orka heimilanna
- Orka náttúrunnar
- Orkubú Vestfjarða
- Orkusalan
- Rafveita Reyðarfjarðar