Umsókn um eingreiðslu vegna umhverfisvænnar orkuöflunar
Með breytingum á lögum um niðurgreiðslur húshitunarkostnaðar var opnað á möguleika ríkisins til að taka þátt í stofnkostnaði við umhverfisvæna orkuöflun sem dregur úr rafhitun eða olíukyndingu. Hægt er að minnka rafhitun með ýmsu móti m.a. með varmadælum, viðarkyndingu, sólarsellum o.s.frv.
Með reiknivél Orkuseturs ( https://orkusetur.is/reiknivelar/raforka/fysileiki-framkvaemda/ ) má meta fýsileika framkvæmda sem leiða til raforkusparnaðar við húshitun. Árleg orkunotkun til hitunar er slegin inn og hlutfallsleg áhrif framkvæmdar á orkunotkun áætluð. Orkudreifingar- og orkusöluaðili er valinn og niðurstaðan gefur árlegan sparnað.
Til íbúðareigenda sem nú hafa rafhitun eða eru með fjarvarmaveitu og vilja taka upp umhverfisvæna orkuöflun og/eða ráðast í aðgerðir sem leiða til bættrar orkunýtingar við húshitun er möguleiki á að sækja um styrk. Um er að ræða eingreiðslustyrk vegna aðgerða sem leiða til betri orkunýtingar við húshitun.
Styrkurinn er reiknaður út frá efniskostnaði við uppsetningu á búnaði og er helmingurinn að heildar efniskostnaði að hámarki 1.337.000 kr. Niðurgreiðslur skerðast ekki við styrkveitingunni og haldast áfram að hámarki 40.000 KWh. Við styrkinn er gerður samningur sem miðast við 15 ár á viðkomandi fasteign en eftir þann tíma er aftur hægt að sækja um sambærilegan styrk á sömu fasteign.
Til að sækja um:
- Fylla út umsókn á netinu (þjónustugátt) og senda rafrænt til Orkustofnunar.
- Fylla út eyðublað á pappírsformi og senda í pósti til Akureyrarseturs Orkustofnunar, Rangárvöllum 603 Akureyri. Orkustofnun sendir eyðublaðið til þeirra sem þess óska.
Með umsókn skal skila inn, öllum reikningum í tengslum við framkvæmdirnar auk mynda af uppsettum búnaði bæði inni og úti.