Útboð verkefna á sviði jarðhita og vatnsaflsvirkjana á vegum Uppbyggingarsjóðs EES í Póllandi – hafa verið framlengd
Loftslags- og umhverfisráðuneyti Póllands ákveðið að framlengja fresti til að skila umsóknum er varða útboð verkefna í Póllandi, á sviði jarðhita og lítilla vatnsaflsvirkjana sem auglýst var 18. maí 2020 samkvæmt umhverfis-, orku- og loftslagsáætlun Uppbyggingarsjóðs EES. Frestunin er vegna óska væntanlegra umsækjenda sem rekja má til tafa sem Covid-19, hefur á undirbúningsvinnu.
Þess vegna hefur skilafrestur á umsóknum er varða jarðhita og litlar vatnsaflsvirkjarnir verið frestað um tvo mánuði, eða til 31. desember 2020, kl. 15:00 - (í stað 30. október 2020, kl. 15:00).
Mikilvægt er að væntanlegir umsóknaraðilar kynni sé frekari upplýsingar á vef loftslags- og umhverfisráðuneytis Póllands .
Jarðhiti
Meginmarkmið útboðsins er að fjármagna verkefni á sviði endurnýjanlegrar orku, orkunýtni og orkuöryggis. Verkefnin eiga að auka notkun endurnýjanlegra orkugjafa með byggingu kerfa fyrir „djúpan“ jarðhita á stöðum þar sem staðfest hefur verið tilvist og notkun jarðhita til upphitunar húsa m.a. með borun á rannsóknarholum. Framkvæmd verkefnanna eiga að leiða til minni losunar á CO2 og auka hagkvæmni.
Litlar vatnsaflsvirkjanir
Meginmarkmið útboðsins sem ætlað er að fjármagna verkefni á sviði endurnýjanlegrar orku, orkunýtni og orkuöryggis, er að auka skilvirkni orkuframleiðslu frá endurnýjanlegum orkugjöfum og draga úr hugsanlegum skaðlegum umhverfisáhrifum núverandi lítilla vatnsaflsvirkjanir (allt að 2MW) með endurnýjun. Framkvæmd verkefnisins á að leiða til minni losunar á CO2 og auka hagkvæmni. Verkefninu er einnig ætlað að auka fræðslustarfsemi sem miðar að því að þjálfa fagfólk á sviði vatnsaflsvirkjana.
Mikil verkefni eru framundan í Póllandi við að breyta hitun húsa með kolum yfir í hitun með jarðhita, sem mikil reynsla er af hér á landi og það er einnig eitt af stærstu verkefnum þar í landi í baráttunni við loftslagsmálin. Umtalsverð tækifæri geta því verið fyrir fyrirtæki frá Íslandi á þessu sviði í Póllandi í samstarfi við aðila þar í landi.