Útboð verkefna á sviði jarðhita á vegum Uppbyggingarsjóðs EES í Póllandi – hafa verið framlengd til 31. mars 2021
Loftslags- og
umhverfisráðuneyti Póllands ákveðið að framlengja fresti til að skila umsóknum
er varða útboð verkefna í Póllandi, á sviði jarðhita sem auglýst var 18. maí
2020 samkvæmt umhverfis-, orku- og loftslagsáætlun Uppbyggingarsjóðs EES.
Frestunin er vegna óska væntanlegra umsækjenda sem rekja má til tafa sem
Covid-19, hefur á undirbúningsvinnu.
Þess vegna hefur skilafrestur á umsóknum er varða jarðhita verið frestað um tvo mánuði, eða til 31. mars 2021, kl. 15:00 - (í stað 31. Desember 2020, kl. 15:00).
Mikilvægt er að væntanlegir
umsóknaraðilar kynni sé frekari upplýsingar á vef
loftslags- og umhverfisráðuneytis Póllands .
Jarðhiti
Meginmarkmið útboðsins er að fjármagna verkefni á sviði endurnýjanlegrar orku,
orkunýtni og orkuöryggis. Verkefnin eiga að auka notkun endurnýjanlegra
orkugjafa með byggingu kerfa fyrir „djúpan“ jarðhita á stöðum þar sem staðfest
hefur verið tilvist og notkun jarðhita til upphitunar húsa m.a. með borun á
rannsóknarholum. Framkvæmd verkefnanna eiga að leiða til minni losunar á CO2 og
auka hagkvæmni.