Fréttir


Að framleiða hreina orku úr sorpi og brennanlegum efnum - nýtt vinnsluferli

4.10.2010

Fimmtudaginn 7. október, kl. 15:00 ætla þeir Mikael Rüdlinger og Karl-Magnus Mattsson frá BNL Clean Energy að vera með kynningu í Orkugarði á lausnum er snúa að útblásturslausri orkutækni.

BNL Clean Energy hefur þróað og fengið einkaleyfi fyrir nýju útblásturslausu vinnsluferli á lífrænum úrgangi  og öðrum brennanlegum efnum. Lykilþáttum ferlisins verður lýst og fjallað um hvers lags efnivið er hægt að nota sem inntak í það og svo hvað framleitt er s.s. rafmagn, orka til upphitunar og/eða kælingar og tilbúið eldsneyti. Einnig er lýst hvernig mengandi efni og þungmálmar í inntaksefniviðnum eru fjarlægð í ferlinu. Að lokum er nýja vinnsluferlið borið saman við hefðbundna sorpbrennslutækni, og farið yfir kosti og fjárhagslega hagkvæmni hinnar nýju útblásturslausu orkutækni.