Fréttir


Vistvænt eldsneyti: Áfangaskýrsla VVE og nýtt verkefni Vistorku

5.2.2007

Út er komin áfangaskýrsla frá Vettvangi um vistvænt eldsneyti. Megintillaga í skýrslunni lýtur að því að endurskoða reglur um opinber gjöld af ökutækjum til að dregið verði úr notkun jarðefnaeldsneytis í samgöngum.

Vettvangur um vistvænt eldsneyti er verkefni á vegum Orkustofnunar og er viðfangsefni hans hvað eina er lýtur að því að gera Íslendinga síður háða innfluttu eldsneyti en nú er og nýta innlenda orku í staðinn. Að stjórn Vettvangsins koma sex ráðuneyti; iðnaðarráðuneyti, utanríkisráðuneyti, sjávarútvegsráðuneyti, umhverfisráðuneyti, samgönguráðuneyti og fjármálaráðuneyti. Sjá nánari upplýsingar í kynningu á Vettvangnum.

Iðnaðarráðuneytið hefur samið við Vistorku um stuðning sem tryggja mun samfellu í vetnisverkefnum á Íslandi. Verður 225 m.kr. úr ríkissjóði varið til verkefnisins á þremur árum 2007 til 2009. Á móti því koma framlög frá erlendum samstarfsaðilum, innlendum orkufyrirtækjum og ýmsum öðrum aðilum.

Jafnframt er fyrirhugað að bera niðurstöður rannsókna á vetnisbílum saman við hliðstæðar rannsóknir á öðrum vistvænum bílum.

Hið nýja verkefni kallast SMART-H2 (Sustainable Marine and Road Transport, Hydrogen in Iceland). Markmið þess er að koma af stað rekstri á 20-30 vetnisbílum og setja vetnisljósavél um borð í ferðamannabát á sjó. Sjá nánari upplýsingar í fréttatilkynningu og kynningu á SMART-H2 verkefninu.

Meginmarkmið þessara tveggja verkefna er að leita leiða til að nýta innlenda orkugjafa í stað innflutts jarðefnaeldsneytis í samgöngum landsmanna og draga um leið úr losun gróðurhúsalofttegunda. Í þessu skyni er keppt að því að fá niðurstöður um það hvers konar vistvæn tækni henti best í samgöngutækjum á Íslandi. Jafnframt eiga verkefnin að afla stjórnvöldum þekkingar og aðstoða þau við stefnumótun og æskilega forystu á þessu sviði.

Upplýsingar um verkefnin.

Nánari upplýsingar um verkefnin veita:

  • Ágústa Loftsdóttir, verkefnisstjóri, Vettvangur um vistvænt eldsneyti. Sími 862-4920
  • Jón Björn Skúlason, framkvæmdastjóri, Íslensk NýOrka. Sími 863-6510
  • Arnar Þór Sævarsson, aðstoðarmaður iðnaðarráðherra. Sími 899-7897