Orkusjóður - styrkveitingar 2007
Í 2. grein reglugerðar um Orkusjóð nr. 514/2003 eru tilgreindar eftirtaldar heimildir til styrkveitinga úr Orkusjóði:
- að veita styrki eða áhættulán til hönnunar eða smíði frumgerðar tækja og búnaðar til rannsóknar og nýtingar orkulinda
- að veita styrki til sérstakra verkefna á sviði hagkvæmrar orkunotkunar, þ.m.t. til fræðslu og upplýsingastarfsemi
- að veita styrki til verkefna sem stuðla að nýtingu á innlendri orku í stað jarðefnaeldsneytis og styrkja alþjóðasamvinnu um slík verkefni
Við úthlutun styrkja á árinu 2007 verður horft til nýnæmis og frumkvæðis verkefna. Sérstök áhersla verður lögð á:
- hagkvæma orkunýtingu og orkusparnað
- framleiðslu á innlendu eldsneyti
- vistvænt eldsneyti og sparnað jarðefnaeldsneytis
- öflun þekkingar á þessum sviðum og miðlun hennar
- rannsóknir, þróun og samstarf er að þessu miðar
Umsóknarfrestur er til 20. febrúar 2007.
Umsóknum skal skila til Orkusjóðs, Borgum við Norðurslóð, 600 Akureyri. Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu sjóðsins og hér á vef Orkustofnunar.
Frekari upplýsingar eru veittar í símum 563 6083 og 894 4280. Einnig má senda fyrirspurnir á netfangið jbj@os.is.
Sjá auglýsinguna sem pdf.