Orkutölur 2008 komnar á vefinn!
Orkutölur 2008 / Energy Statistics 2008 sem komu út í júlí sl. telur 12 blaðsíður og spannar margvíslegar upplýsingar um orkumál, s.s. samanburð á orkuverði til húshitunar, kort af raforkukerfi á Íslandi, jarðhitanotkun ársins 2007, notkun eldsneytis innanlands og í samgöngum 1983-2007, frumorkunotkun á Íslandi 1940-2007, raforkuvinnslu á Íslandi 2007 og 2006, raforkunotkun árið 2007, töflu yfir stærstu hitaveitur á Íslandi og jarðhitakort.
Ívar Þorsteinsson, Haukur Eggertsson og Þorgils Jónasson tóku saman efnið, Vilborg Anna Björnsdóttir hannaði og braut um og Íslandsprent prentaði. Myndina á forsíðu tók Oddur Sigurðsson.
Orkutölurnar fást án endurgjalds og er hægt að nálgast þær hjá Orkustofnun.
Fyrri pantanir óskast endurnýjaðar, í síma 569-6000 eða með tölvupósti á gb@os.is.
Einnig er hægt að nálgast smáritið á pdf-formi á útgáfusíðum vefs Orkustofnunar.