Fréttir


Innlent og umhverfisvænt

1.12.2008

Fjallað verður um möguleika á framleiðslu vistvæns eldsneytis hér á landi, á 10. stefnumóti Umhverfisstofnunar og Stofnunar Sæmundar fróða.
Erindi:

Yfirlit yfir möguleika Íslands á eldsneytisframleiðslu. Ágústa Loftsdóttir, verkefnisstjóri Vettvangs um vistvænt eldsneyti hjá Orkustofnun, veitir yfirlit yfir þá möguleika sem eru fyrir hendi.

Well to wheels. K.C. Tran, forstjóri Carbon Recycling International, mun fjalla um framleiðslu fyrirtækisins á metanóli út koltvísýringsútblæstri frá jarðvarmavirkjunum.

Fundurinn fer fram í fundarsal Þjóðminjasafnsins miðvikudaginn 3. desember kl. 12:00 til 13:30.