Aker Exploration AS dregur umsókn sína til baka
Í bréfinu segir að vegna breyttrar stefnumörkunar hjá fyrirtækinu hafi Aker Exploration AS ákveðið að draga til baka umsókn sína um sérleyfi til rannsókna og vinnslu kolvetna samkvæmt 1. útboði á Drekasvæðinu.
Þann 15. maí sl. rann út frestur til að sækja um sérleyfi til rannsókna og vinnslu kolvetnis á Drekasvæði. Orkustofnun bárust þá umsóknir frá:
- Aker Exploration
- Sagex Petroleum og Lindir Exploration
Umsókn Sagex Petroleum og Lindir Exploration er enn í vinnslu.
Auk þess veitti Orkustofnun þann 5. júní sl. bandaríska fyrirtækinu ION GX Technology leyfi til leitar að kolvetni á norðanverðu Drekasvæðinu.