Fréttir


Styrkir til endurglerjunar húsnæðis – Átaksverkefni 2010

30.8.2010

Iðnaðarráðuneytið í samvinnu við Orkustofnun/Orkusetur hefur ákveðið að styrkja húseigendur sem ráðast vilja í endurbætur á einangrun húsnæðis í þeim tilgangi að draga úr orkunotkun og þar með kostnaði við upphitun þess.

Átaksverkefninu er ætlað:

  • Að lækka orkukostnað íbúa með rafhitun eða olíukyndingu
  • Að skapa atvinnu við endurbætur og viðhald fasteigna
  • Að skapa verkefni fyrir innlenda glerframleiðendur
  • Að auka búsetugæði á köldum svæðum
  • Að efla áhuga húseigenda á orkusparandi framkvæmdum
  • Að safna upplýsingum um árangur verkefnanna og miðla þeim

 

Auglýst er eftir umsóknum um styrki til:

  • Endurglerjunar húsnæðis – skipta í betur einangrandi gler

   

Um styrk getur sótt hver sá eigandi húsnæðis sem fær húshitunarkostnað sinn niðurgreiddan úr ríkissjóði.  

Við mat á umsóknum verður horft til aldurs og orkunotkunar húsnæðis. 

Upphæð styrks til einstakra verkefna getur numið allt að kr. 300.000 en þó aldrei hærri upphæð en 50% glerkostnaðar.

Umsóknareyðublöð má nálgast á heimasíðu Orkuseturs www.orkusetur.is, upplýsingar fást í síma 569 6085. Einnig er hægt að hafa samband við Orkusetur á netfanginu sif@os.is    

Umsóknarfrestur er til  1.10.2010

 

Athygli er vakin á endurgreiðslu virðisaukaskatts og skattfrádrætti vegna framkvæmda við íbúðarhúsnæði þegar unnið er að viðhaldi eða endurbótum á húsnæðinu á byggingarstað.