Fréttir


Opinn fundur um orkustefnu fyrir Ísland

17.2.2010

Haldinn í Öskju, náttúrufræðahúsi Háskóla Íslands, fimmtudaginn 25. febrúar kl. 14:00-16:00

Haldinn í Öskju, náttúrufræðahúsi Háskóla Íslands, fimmtudaginn 25. febrúar kl. 14:00-16:00

 

Iðnaðarráðherra hefur skipað stýrihóp sem skal móta heildstæða orkustefnu fyrir Ísland.

Hópurinn er kominn vel af stað í sinni vinnu en telur nauðsynlegt að leita eftir samráði við stjórnmálaflokka, hagsmunaaðila og almenning, áður en lengra verður haldið.

 

Til að ná fram slíku samráði verður haldinn opinn kynningarfundur í Öskju, náttúrufræðahúsi Háskóla Íslands, þann 25. febrúar nk.,   kl. 14:00-16:00.

 

Dagskrá:

 



14:00-14:10        Ávarp iðnaðarráðherra, Katrínar Júlíusdóttur

14:10-14:30        Vilhjálmur Þorsteinsson form. stýrihóps um orkustefnu kynnir störf hópsins

14:30-15:20        Ávörp frá fulltrúum þingflokka um áherslur í orkumálum

  • Gunnar Bragi Sveinsson, alþingismaður, Framsóknarflokki,
  • Ólöf Nordal, alþingismaður, Sjálfstæðisflokki,
  • Skúli Helgason, alþingismaður, Samfylkingu,
  • Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra,  VG,
  • Þór Saari, alþingismaður,  Hreyfingunni

 

15:20-16:00        Umræður og fyrirspurnir

 

Fundarstjóri: Þóra Kristín Ásgeirsdóttir

 



 

Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.