Raforkunotkun ársins 2009
Árið 2009 nam raforkuvinnsla á landinu samtals 16.839 GWh og jókst um 2,3% frá fyrra ári.
Stórnotkun nam 12.925 GWh á árinu 2009 og jókst um 3,9% frá fyrra ári. Almenn notkun
minnkaði um 2,1% og nam 3.558 GWh. Töp við flutning orkunnar frá virkjunum til
almenningsveitna og stórnotenda voru 356 GWh og minnkuðu um 11,0%. Veðurfar hefur
nokkur áhrif á raforkunotkun aðallega vegna rafhitunar húsnæðis. Til að fá eðlilegan
samanburð milli ára hvað varðar þróun almennrar raforkunotkunar er hún oft leiðrétt út frá
lofthita. Síðasta ár var hlýrra en árið á undan og aukning notkunar milli ára er því heldur
meiri eftir hitastigsleiðréttingu. Tölur leiðréttar út frá lofthita eru sýndar innan sviga þar sem
slíkt á við.
Fréttatilkynning frá Orkuspárnefnd.