Fréttir


Raforkuspá 2016 – 2050

24.11.2016

Endurreikningur á spá frá 2015 út frá nýjum gögnum og breyttum forsendum

Í skýrslunni er fjallað um raforkunotkun fram til ársins 2050. Hún er unnin á vegum Orkuspárnefndar og er endurreikningur á spá frá 2015 út frá nýjum gögnum og breyttum forsendum.  Spáin er byggð á forsendum um mannfjölda, fjölda heimila, landsframleiðslu og framleiðslu einstakra atvinnugreina. Almennri raforkunotkun er skipt niður í sex flokka auk dreifi- og flutningstapa. Notkuninni er þar að auki skipt eftir því frá hvaða kerfishluta notkunin er afhent, þ.e. beint frá virkjun, frá flutningskerfinu eða frá dreifikerfum. Fyrir stóriðju er miðað við samninga sem þegar hafa verið gerðir.


Skýrsluna má nálgast hér.