Sparnaður í losun koldíoxíðs nemur 140 milljónum tonna á einni öld með nýtingu jarðhita í stað olíu
Orkustofnun hefur lagt mat á sparnað í losun koldíoxíðs með nýtingu jarðhita í stað olíu frá 1914 til 2014. Uppsafnaður sparnaður nemur 140 milljónum tonna með nýtingu jarðhita í stað olíu til varmanotkunar og raforkuvinnslu eins og þekkist víða erlendis. Tveir þriðju hlutar sparnaðarins er framlag hitaveitna á Íslandi í eina öld.

Árið 1953 samþykkti Alþingi lög sem heimiluðu ríkinu að fjármagna allt að 80% af heildarfjárfestingarkostnaði hitaveitna utan höfuðborgarsvæðisins eftir góðan árangur Reykjavíkurborgar. Á forsíðu Morgunblaðsins árið 1938 má sjá hve stóran þátt hitaveituvæðing höfuðborgarsvæðins skipaði í borgarstjórnarkosningum þess árs. Snérist umræðan þar ekki síður um loftgæði en lækkun húshitunarkostnaðar eins og sjá má á forsíðunni.

Veruleiki íslendinga hefur breyst til hins betra frá tímum kolanýtingar til húshitunar og virkar sá veruleiki fjarlægur okkur í dag. Engu að síður eru margar þjóðir heims enn í þeim sporum sem Íslendingar voru í eftir seinni heimsstyrjöldina. Stefnumörkun íslenskra stjórnvalda fyrir um 62 árum hefur skilað heiminum þessum sparnaði og mikilvægt í komandi stefnumörkun framtíðar að horfa til þess árangurs sem nú þegar hefur tekist og hægt er að ná með hagkvæmum grænum lausnum þar sem þær eru að finna eins og til dæmis hér á Íslandi til að draga úr áhrifum loftslagsbreytinga.
Nálgast má gögn Orkustofnunar inn á Talnaefnissíðu stofnunarinnar hér (OS-2015-T007-01).
Prentvæna útgáfu af töflunni OS-2015-T007-01 má finna hér.