Ábyrg stjórnun olíuvinnslu
Sameiginlegur fundur íslenskra og bandarískra stjórnvalda um ábyrga stjórnun olíu- og gasvinnslu á norðurslóðum var haldinn í Reykjavík dagana 18-19. ágúst.
Utanríkisráðuneyti Íslands og Bandaríkjanna í samvinnu við atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið, sendiráð Bandaríkjanna og Orkustofnun, efndu til tveggja daga málsstofu í Reykjavík um ábyrga stjórnun olíu- og gasvinnslu á norðurslóðum. Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, setti málstofuna.
Á málsstofunni ræddu bandarískir og íslenskir sérfræðingar málefni sem varða setningu laga og reglna um starfsemi olíu- og gasvinnslu og jafnframt um langtíma stjórnun slíkrar vinnslu. Bandaríkjamenn, sem nýverið tóku við formennsku í Norðurskautsráðinu hafa sýnt olíuvinnslu á norðurslóðum mikinn áhuga. Nýverið settu þeir af stað verkefni sem hefur það að markmiði að auka umræðuna um olíuvinnslu á norðurslóðum, sem unnið er sérstaklega með íslenskum og grænlenskum stjórnvöldum. Auk málstofunnar nú verða haldnar málstofur í Nuuk á Grænlandi síðar á árinu og í Finnlandi árið 2016.