Kolvetnisrannsóknasjóður auglýsir eftir styrkumsóknum
Kolvetnisrannsóknasjóður er mennta- og rannsóknasjóður í tengslum við kolvetnisstarfsemi á Íslandi. Umsóknarfrestur er til 30. apríl 2015
Hlutverk sjóðsins er að stuðla að því að efla rannsóknir og vísindalega þekkingu á kolvetnisauðlindum á landgrunni Íslands og á skilyrðum til myndunar þeirra, ásamt rannsóknum á tækni sem beita má við þær aðstæður er þar ríkja. Sjá nánar í reglugerð um sjóðinn og verklagsreglum hans.
Áherslur við úthlutun 2015:
- Rannsóknir á setlögum frá því fyrir opnun Norður-Atlantshafsins á Jan Mayen hryggnum.
Ýmsar aðferðir á sviði setlagafræði, jarðefnafræði, jarðeðlisfræði og jarðfræði má nota við rannsóknirnar. Við skipulag rannsókna ber að hafa í huga opnunarsögu Norður-Atlantshafsins og áhrif hennar á jarðfræði rannsóknarsvæðisins.
Umsókn skal senda rafrænt í gegnum þjónustugátt Orkustofnunar.
Upplýsingar um kolvetnisrannsóknasjóð.