Fréttir


Í krafti vindsins

6.10.2014

Fyrsta miðvikudagserindi vetrarins er frá Biokraft og fjallar um tvær vindmyllur sem nýlega voru settar upp í Þykkvabæ. Snorri Sturluson frá Biokraft flytur erindið þann 22. október klukkan 12:00 í Orkugarði, Grensásvegi 9.

Orkustofnun veitti Biokraft virkjunarleyfi fyrir tveimur 600 kW vindrafstöðvum í Þykkvabæ þann 8. júlí á þessu ári. Formleg gangsetning vindmyllanna var þann 23. september síðastliðinn og hafa þær báðar hafið raforkuframleiðslu og sölu inn á landsnetið. Vindmyllurnar keyra á fullum krafti og hefur raforkuframleiðslan gengið vel.

Allir eru velkomnir