Fréttir


Fjölmennt á morgunfundinum Vatnið og orkan

7.3.2014

Fjölmennt var á morgunfundi í tilefni af alþjóðlegum degi vatnsins sem haldinn var í Hörpunni í morgun. Rúmlega 150 manns sóttu fundinn en forstjóri Umhverfisstofnunar, Kristín Linda Árnadóttir, stýrði honum.

Guðni A. Jóhannesson, orkumálastjóri, hélt erindi um sjálfbærnivísa fyrir vatnsafl og jarðhita og velti því fyrir sér hvernig þeir geti nýst við skipulags- og framkvæmdaáætlanir á Íslandi.

Alþjóðlegi matslykillinn um sjálfbæra nýtingu vatnsafls, sem orkumálastjóri tók þátt í að móta, var gefinn út árið 2011 og hefur verið í notkun hjá Landsvirkjun. Annars vegar í úttekt á fyrirhugaðri Hvammsvirkjun í Þjórsá og hins vegar á rekstri Blönduvirkjunar. Talið er að hægt sé að nota matslykilinn á fleiri sviðum en í vatnsafli með viðeigandi aðlögun, til að mynda fyrir jarðhitavirkjanir.

Aðrir fyrirlesarar voru Jörg Hartmann sjálfstæður ráðgjafi og einn af höfundum lykilsins, Stefán Gíslason formaður verkefnisstjórnar Rammaáætlunar og Árni Snorrason, forstjóri Veðurstofu Íslands sem fjallaði um loftslagsbreytingar, áhrif þeirra á vatnafar og hvaða afleiðingar það hefur fyrir okkur.

Áhugaverðar umræður urðu í lok fundarins þar sem gestum gafst tækifæri til að spyrja fyrirlesarana spjörunum úr.

Alþjóðadagur vatnsins, sem er síðar í marsmánuði, er undir verndarvæng Menningar- og vísindastofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNESCO) og er dagurinn á þessu ári helgaður vatni og orku.  Það var Orkustofnun, Umhverfisstofnun, Veðurstofan og Landsvirkjun sem stóðu fyrir ráðstefnunni í tilefni af alþjóðadegi vatnsins.