Sérfræðingur í hagfræði raforkumála
Helstu verkefni:
- Að hafa samskipti við dreifiveitur og flutningsfyrirtæki
- Öflun gagna úr rekstri þeirra sem unnið er úr
- Ákvörðun tekjumarka og eftirlit með gjaldskrám raforkufyrirtækja og rafveitna
- Greining á rekstrarforsendum fyrirtækjanna og virkni tekjumarka m.a. með líkanagerð, hermun og álagsprófunum
- Samskipti við og upplýsingagjöf til stjórnvalda og erlendra stofnana og eftirlitsaðila
Hæfniskröfur:
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi, helst á sviði rekstrarverkfræði eða rekstrarhagfræði
- Sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Gott vald á íslensku og ensku er skilyrði og þekking á einu norðurlandamáli æskileg.
- Hæfileiki til þess að koma frá sér efni í töluðu og rituðu máli.
- Æskilegt að umsækjandi hafi þekkingu á orkumálum.
- Raforkueftirlitið er samstarfsverkefni teymis starfsmanna við Orkustofnun og gerir kröfu um hæfni til ríkra samskipta og sveigjanleika í starfi.
Laun greiðast samkvæmt samningum fjármálráðuneytisins við viðkomandi stéttarfélag.
Orkustofnun stefnir að því að halda jöfnu hlutfalli kynjanna í starfsliði sínu.
Nánari upplýsingar veitir Guðni A Jóhannesson orkumálastjóri, sími 5696000, netfang gudni.a.johannesson@os.is.
Umsóknir með upplýsingum um menntun og fyrri störf berist til Guðnýjar Þórsdóttur starfsmannastjóra Orkustofnunar, Grensásvegi 9, 108 Reykjavik eða á netfang gd@os.is eigi síðar en 13. desember 2013.
Öllum umsóknum verður svarað.