Framleiðsla raforku úr vindorku meiri en framleiðsla raforku úr eldsneyti framan af ári 2013.
Framleiðsla raforku með vindorku er nú meiri en framleiðsla raforku úr eldsneyti samkvæmt framleiðslutölum, og skreið vindurinn fram úr eldsneytinu þegar í marsmánuði.
Vindmyllur Landsvirkjunar voru settar upp í desember 2012 í rannsóknarskyni og eru staðsettar norðan við Búrfell á hraunsléttu sem kölluð er Hafið. Hagkvæmni raforkuframleiðslu með vindorku hefur aldrei fyrr verið könnuð á Íslandi og eru vindmyllurnar tvær sem reistar hafa verið þær fyrstu af þessari stærðargráðu á Íslandi.
Rannsóknir verða gerðar til að sjá hvernig vindmyllurnar koma út
við íslenskar aðstæður eins og til að mynda hvað varðar ísingu, skafrenning, og ösku- og sandfok.
Vindmyllurnar eru hvor um sig 900 kW og samanlögð raforkuframleiðsla þeirra er áætluð um 5,4 GWst á ári. Það myndi nægja til að sjá um 1.200 heimilum fyrir rafmagni til daglegra nota.
Í töflunni hér að neðan má sjá framleiðslutölurnar á þessu ári:
Ár | Uppruni |
Janúar MWh |
Febrúar MWh |
Mars MWh |
Apríl MWh |
Maí MWh |
2013 | Vatnsafl | 1.108.218 | 1.020.689 | 1.126.791 | 1.051.551 | 1.060.729 |
2013 | Jarðhiti | 465.194 | 418.299 | 461.474 | 441.002 | 438.044 |
2013 | Eldsneyti | 977 | 105 | 108 | 95 | 98 |
2013 | Vindorka | 236 | 532 | 664 | 430 | 296 |
2013 | Alls | 1.574.625 | 1.439.624 | 1.589.037 | 1.493.078 | 1.499.168 |
Frekari upplýsingar um vindmyllurnar má finna á vef Landsvirkjunar.