Fundur um orkumál heimila
Orkusetur og Iðnaðarverkfræði, vélaverkfræði og tölvunarfræðideild Háskóla Íslands boða til fundar um orkumál heimila föstudaginn 27. apríl 2012, kl. 13-15:30 í Orkugarði, Grensásvegi 9, 108 Reykjavík.
Kynnt verða Evrópuverkefnin PROMISE og OCTES sem snúast um orkumælingar og möguleika á orkusparnaði á heimilum en einnig verður farið yfir hugmyndir um orkuverðsjöfnun á orkuverði til almennings.
Dagskrá:
Orkukostnaður heimila og möguleikar til orkusparnaðar - Promise - Sigurður Friðleifsson, framkvæmdastjóri Orkuseturs
Orkuvöktun og möguleiki orkustýringa - Octes - Rúnar Unnþórsson, lektor í véla- og iðnaðarverkfræði.
Kaffihlé
Orkuverð og orkuverðsjöfnun - Benedikt Guðmundsson, verkefnastjóri Orkustofnun
Umræður