Fréttir


Leyfi Eykon Energy ehf. til olíuleitar og vinnslu nr. 2014/01 á Drekasvæðinu hefur verið afturkallað.

7.3.2018

Fyrir liggur að CNOOC Iceland ehf. og Petoro Iceland AS hafa dregið sig út úr leyfi til olíuleitar og vinnslu á Drekasvæðinu. Að mati Orkustofnunar uppfyllir Eykon Energy ehf. ekki skilyrði kolvetnislaga, hvorki um tæknilegra né fjárhagslega getu til að takast eitt á við kröfur og skilmála leyfisins eða að vera rekstraraðili þess.

Orkustofnun hefur kynnt Eykon Energy ehf. þessa niðurstöðu sína, að virtum andmælum félagsins. Með vísan til ákvæða kolvetnislaga og skilmála leyfisins er leyfi Eykon Energy ehf. afturkallað.

Orkustofnun telur sér ekki heimilt að verða við þeirri ósk Eykon Energy ehf. að félagið fái sérstakan frest til að finna sér nýjan rekstraraðila til samstarfs um olíuleit á Drekasvæðinu. Það bryti í bága við jafnræðisreglu stjórnsýsluréttarins og ákvæði kolvetnislaga, að veita nýjum aðila forgang að sérleyfi á Drekasvæðinu, án auglýsingar. Að jafnaði skal auglýsa eftir umsækjendum, áður en leyfi til rannsókna og vinnslu á kolvetnum er veitt. Auglýsa skal eftir slíkum umsóknum í Lögbirtingablaðinu og Stjórnartíðindum ESB. Orkustofnun hefur í bréfi sínu í dag til Eykon Energy ehf. bent á að finni félagið samstarfsaðila eða ef aðrir mögulegir áhugaaðilar um leit og vinnslu kolvetna á Drekasvæðinu óski þar eftir sérleyfi, muni Orkustofnun ígrunda að birta auglýsingu um skilmála nýrra leyfa á lögformlegan hátt. Svæðið yrði þá opið til umsókna [open door], í samræmi við ákvæði kolvetnislaga, án sérstaks útboðs.