Fjögur ráðin til Orkustofnunar til að efla miðlun og vinnslu gagna
Gengið hefur verið frá ráðningum í fjórar stöður hjá Orkustofnun, en um er að ræða tvær stöður sérfræðinga í greiningum og gögnum, auk ráðningu nýs þróunarstjóra gagna og verkefnastjóra Orkuseturs. Ráðningarnar koma í kjölfar skipulagsbreytinga og með þeim fjölgar stöðugildum um tvö í þessum málaflokki innan Orkustofnunar.
Tilgangurinn með
breytingunum er að efla verulega miðlun og vinnslu gagna um orkumarkaðinn, bæta
upplýsingagjöf til markaðsaðila, svo sem umsækjenda um leyfi og annarra
viðskiptavina. Þær koma í kjölfar innleiðingar á nýrri stefnu
Orkustofnunar síðastliðið haust sem miðar að því
að aðlaga starfsemina að markmiðum Orkustefnu Íslands. Eitt meginstefið í henni
er nútímavæðing gagnamála orkugeirans og meðal umbótaverkefna sem framundan eru
hjá Orkustofnun eru sjálfvirknivæðing gagnaöflunar, stafræn vegferð
leyfisveitinga og þróun mælaborða, m.a. til þess að bæta aðgengi að upplýsingum
um stöðu mála á raforkumörkuðum. Jafnframt aukum
við áherslu á miðlun gagna til almennings á aðgengilegan og skiljanlegan hátt í
gegnum Orkusetur Orkustofnunar.
Halla Hrund Logadóttir, Orkumálastjóri: „Við erum að taka stórt skref með þessum breytingum í að færa stofnunina úr fortíð í framtíð. Það er mikill kraftur í umhverfinu núna og við þurfum að vera með puttann á púlsinum. Bent hefur verið á að bæta þurfi skilvirkni og gagnsæi hjá Orkustofnun og því erum við í þessari vegferð og unnið verður að umbótum í áföngum næstu misserin. Það er viðamikið verkefni að fara úr þunglamalegum ferlum yfir í nútímann en með því að nýta tæknina er hægt að þjóna stjórnvöldum, almenningi og hagaðilum betur. Meðal annars að greina innviði fyrir orkuskiptin, sviðsmyndir orkuspáa og efla starfsemi raforkueftirlits. Breytingarnar leggja einnig grunn að því að hægt sé að meta orkuöryggi almennings en stjórnvöld vinna nú að því að tryggja það betur í lögum. Þetta er spennandi vegferð og mikilvægur liður í því að ná markmiðum Orkustefnu Íslands og gerir stofnunina sterkari í að sinna lögbundum hlutverkum sínum s.s. stjórnsýslu orkumála og ráðgjöf til stjórnvalda.“
Björn Arnar Hauksson hefur verið ráðinn
sérfræðingur á sviði raforkurekstrar og hagræns eftirlits.
Björn mun einnig gegna lykilhlutverki í innleiðingu notendavænnar
gagna- og greiningarstefnu Orkustofnunar.
Björn hefur víðtæka
starfsreynslu á sviði greiningar og stefnumótunar á sviði fjárfestinga, m.a.
tengdum raforku og öðrum orkumörkuðum. Síðustu ár hefur hann starfað að
hagfræðiráðgjöf og við fjárfestingar og rekstur í ferðaþjónustu. Björn var
framkvæmdastjóri í stefnumótun, markaðsrannsóknum og fjárfestingum hjá Noble
Group í Singapúr á árunum 2014 til 2017. Hann starfaði sem sérfræðingur í
markaðsgreiningu og stefnumótun hjá BHP í Hollandi og Singapúr á árunum
2010-2014 og sérfræðingur í tölvunarfræði og áhættugreiningu hjá
Intercontinental Exchange í London á árunum 2005-2007. Þá starfaði hann á
árum áður við greiningar og líkanagerð hjá Seðlabanka Íslands. Björn er með
meistaragráðu í hagfræði frá London School of Economcis, BS gráðu í hagfræði og
BS gráðu í tölvunarfræði frá Háskóla Íslands.
Dagur Helgason hefur verið ráðinn sem
sérfræðingur í greiningu orkumarkaða. Dagur hefur starfað sem sérfræðingur í viðskiptagreiningum hjá ON frá
árinu 2020 og greinandi í virkjanarekstri hjá sama fyrirtæki frá árinu 2018.
Sérhæfing Dags liggur á sviði greininga á orkuframleiðslu, markaði og
umhverfisáhrifum, sem og á sviði gagnadrifinnar ákvarðanatöku. Þá hefur
hann verið meðlimur í greiningarhópi Samorku sem sér um greiningar á þörfum
raforkumarkaðar. Dagur er með meistaragráðu í Orkuverkfræði frá íslenska
Orkuskólanum við Háskólann í Reykjavík og BSc gráðu í efnaverkfræði frá Háskóla
Íslands.
Davíð Steinar Guðjónsson hefur verið ráðinn
þróunarstjóri gagna. Davíð Steinar hefur um
átta ára skeið starfað sem sérfræðingur í hugbúnaðarþróun hjá Veðurstofu
Íslands þar sem hann hefur meðal annars séð um hönnun og viðhald gagnagrunna og
gagnastrauma og verið fagstjóri gagnamála. Á árum áður starfaði hann hjá
UpperBlue á Akureyri við úrlausn upplýsingatækniverkefna. Þá var hann
verkefnastjóri hjá RES-School for Renewable Energy Science á Akureyri og
starfaði um skeið fyrir BooleanWays í Hollandi, m.a. við söfnun tölfræðigagna
um fyrirtæki og stofnanir og stýrði 7 manna teymi í Indlandi. Davíð
Steinar er með MSc gráðu í tölvunarfræði frá Háskólanum í Reykjavík og BSc
gráðu í tölvunarfræði frá Háskólanum á Akureyri.
Eyrún Gígja Káradóttir hefur verið ráðin
verkefnastjóri Orkuseturs Orkustofnunar. Eyrún hefur frá því í mars 2021 starfað sem verkefnastjóri
fræðslumála hjá Vistorku við fræðslu og vitundarvakningu almennings um
umhverfis og loftslagsmál, sem og orkuskipti. Hún starfaði um skeið sem
þjónustufulltrúi á búsetusviði Akureyrarbæjar. Þá var hún á árunum
2013-2018 fagstjóri raungreinasviðs Menntaskólans á Akureyri auk þess að sinna
kennslu við líffræði við skólann og sitja í námaskrárnefnd skólans á
tímabilinu. Eyrún er með meistaragráðu í menntunarfræðum frá Háskólanum á
Akureyri og BS gráðu í líffræði frá sama skóla.