Fréttir


Almennt rannsóknarleyfi til grunnrannsókna á örverum í Öxarfirði

27.1.2023

Orkustofnun hefur veitt Háskólanum á Akureyri almennt rannsóknarleyfi til grunnrannsókna á örverum í Öxarfirði

Nálgast má rannsóknarleyfið og fylgibréf leyfis á vef Orkustofnunar, sjá OS-2023-L002-01.

Ákvarðanir Orkustofnunar er lúta að veitingu rannsóknarleyfa sæta kæru til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, sbr. 2. mgr. 33. gr. laga um rannsóknir og nýtingu á auðlindum í jörðu, nr. 57/1998. Skal kæra borin fram innan eins mánaðar frá því kæranda varð kunnugt eða mátti vera kunnugt um ákvörðunina. Um aðild, málsmeðferð og annað er varðar kæruna fer samkvæmt lögum um úrskurðarnefndina, nr. 130/2011.